Lásinn hélt á vönduðu reiðhjóli sem fest var við nýjan hjólastand á nýuppgerðri göngugötu á Hlemmi. Þjófarnir létu það ekki stöðva sig heldur skrúfuðu af hjól, bretti og allt saman. Skildu stellið eftir enda var það vel fest með lásnum við hjólastandinn nýja.







