Lásinn hélt á vönduðu reiðhjóli sem fest var við nýjan hjólastand á nýuppgerðri göngugötu á Hlemmi. Þjófarnir létu það ekki stöðva sig heldur skrúfuðu af hjól, bretti og allt saman. Skildu stellið eftir enda var það vel fest með lásnum við hjólastandinn nýja.
ÍSLENSKI FÁNINN Á JÓLASERVÍETTUM

Farið er að nota íslenska fánann á jólaservíettur. Hægt er að fá þær í Partylandi í Holtagörðum, 20 stykki á 1.290 krónur. Líka má finna þær í Krónunni innan um annað jólasskraut.
HVORT Á AÐ SEGJA FISKBOLLA EÐA FISKIBOLLA?
„Hvort á að segja fiskbolla eða fiskibolla?“ spyr Benedikt Björgvinsson á umræðuvefnum Málspjall sem Eiríkur Rögnvaldsson stjörnumálfræðingur stjórnar. Og ekki stendur á viðbrögðum:
RÓSA (60)
Rósa Guðbjartsdóttir alþingiskona og fyrrum bæjarstjóri í Hafnarfirði er sextug í dag. Hún fær óskalagið Roses Are Red (My Love) með Bobby Vinton:
STREISAND TÆTIR TRUMP Í SIG
KJAFTSHÖGG HVERN EINASTA DAG…
Íslenskir dægurlagatextar eru allskonar og margir fá ýmsar útgáfur þeirra á heilann við ákveðnar aðstæður. Fræg er sagan af manninum sem fær Snæfinn snjókall á heilann alla júlímánuði og svo hinn sem losnar ekki við Ég er kokkur á kútter frá Sandi og hefur sú árátta staðið í mörg ár. Textinn er svæsinn – eftir Örnólf í Vík og lagið eftir Ólaf Gauk.
Ég er kokkur á kútter frá Sandi.
Ég fæ kjaftshögg hvern einasta dag.
Og ekki líður með betur í landi.
ef ég lendi við konu í slag.
NÝJAR SÁNUR OPNAÐAR Í VESTURBÆJARLAUG EFTIR HELGI
ÓSKAR Á TOPP 10
ALLIR Í ÁRBÆ 1. DES.
Í tilefni fullveldisdagsins þann 1. desember kl. 18-22 efna Árbæjarsafn, Félag harmonikuunnenda í Reykjavík, Heimilisiðnaðarfélag Íslands, Kvæðamannafélagið Iðunn og Þjóðdansafélag Reykjavíkur til fögnuðar á Árbæjarsafni. Frítt inn!
Gestum gefst færi á að kynnast gömlu dönsunum, handverki, harmonikum, kveðskap, þjóðbúningum, þjóðdönsum, þjóðlögum og þeim menningararfi sem iðkaður er af félögunum sem að viðburðinum koma auk þess að kynnast starfi félaganna. Á viðburðinum verða skemmtileg örnámskeið og kynningar þar sem hægt verður að læra að sauma gamla íslenska krosssauminn og gera úr því lítið jólaskraut, læra grunnsporin í þjóðdönsum og kynnast kvæðalögum.
Dillonshús verður opið og býður upp á dýrindis veitingar
Í tilefni dagsins eru gestir hvattir til að mæta í þjóðbúning, en hægt verður að fá ráðgjöf varðandi búninganotkun og hvernig koma megi eldri búningum í notkun.

