Home Blog Page 42

MINNISLISTI JÓLANNA

0

Leggið á minnið, prentið út, farið eftir og sjáið hvað gerist!

SÉNÍ MEÐ PLAN ER ÓSIGRANDI

0

„Það borgar sig að vera með “plan,” segir Ragnar Önundarson fyrrum bankastjóri og samfélagsrýnir:

„Áður var skortur á hagfræðiþekkingu innan Samfylkingarinnar, auk þess sem hún hafði ekkert “plan.” Nú hefur verið bætt úr þessu, fylgið þýtur upp, “séní með plan” er ósigrandi.“

ER TILGANGUR LÍFSINS ÞÁ SÁ EINN AÐ LJÚKA ÞVÍ NOKKURN VEGINN SKAMMLAUST?

0

Jónatan Hermannsson fyrrum tilraunastjóri Rannsóknarstofnunar landbúnaðarins er 79 ára í dag. Varla líður sá dagur að hann láti ekki hugann reika, raði saman orðum betur en flestir aðrir og birti á Veraldarvefnum. Hér er allt lífið undir:

líður dagur
líður vika
líður ár
flytjum þau úr bunkanum
sem geymir ókomna tíð
yfir í bunkann
sem geymir hið liðna
og svo furðulegt
að líkast er
sem því fylgi léttir
þá er
þessi dagur
þessi vika
þetta ár
frá
ég veit ekki lengur
hvað ég á að halda
er lífið bara eitthvað
sem við afplánum
og léttir við hvern dag sem líður?
er tilgangur lífsins
þá sá einn
að ljúka því nokkurn veginn skammlaust?
eða var það ef til vill
eitthvað fleira?

JIMI HENDRIX (83)

0

Gítargoðsögnin Jimi Hendrix (1942-1970) hefði orðið 83 ára í dag en hann lést aðeins 28 ára gamall. Minningin lifir í sérstökum gítarhljómi sem enn er án hliðstæðu – Hey Joe!

PÉTURSBÚÐ SELUR BLÁHORNIÐ

0

Kaupmennirnir í Pétursbúð á Ægisgötu í Reykjavík hafa selt Bláhornið á Grundarstíg sem þeir keypti fyrir níu mánuðum.

„Við erum ánægðir. Það var kona frá Víetnam sem keypti og hún á eftir að gera góða hluti þarna,“ sagði Axel kaupmaður í Pétursbúð.

STARFSLOK STJÁNA BLÁA

0
Jenny með myndina.
Jenny með myndina.

Þessi mynd  af Stána bláa er til sölu hjá Jenny Rut Art. Starfslok heitir hún, 60×50 og kostar 95 þúsund. Tilvalin jólagjöf fyrir skemmtilegan eldri borgara. Bara ein til.

HÁTÍÐ HÆGLÆTIS, ÍGRUNDUNAR OG SAMVERU Á ENDA

0

Síðastliðinn október gæddi Sequences tvíæringurinn Reykjavík lífi með tíu daga dagskrá og sýningum á fjölmörgum stöðum víðsvegar um borgina. Sýningum hátíðarinnar er nú lokið, að undanskilinni Setminni í Norræna húsinu, sem stendur áfram til 14. desember. Við hvetjum gesti til að nýta tímann og upplifa sýninguna í ró og næði.

Pása.
Pása.

Í ár stýrði Daria Sól Andrews hátíðinni og hvatti gesti til að staldra við og upplifa listina sem vettvang sameiginlegrar einbeitingar. Undir yfirskriftinni Pása teigði Sequences XII anga sína í Nýlistasafnið og Kling & Bang í Marshallhúsinu, Norræna húsið, Safnahúsið, Ásmundarsal, og víðar svo að borgin varð að landslagi hæglætis og líkamlegrar íhugunar.

GÓÐ RÁÐNING

0

Tryggvi Másson nýr framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins er með meistarapróf í atferlisfræði frá Hollandi. Kemur sér vel.

TINA TURNER (86)

0

Tina Turner (1939-2023) hefði orðið 86 ára í dag. Kölluð „Queen of Rock ‘n’ Roll“ og stærri verða nafnbæturnar ekki í hennar bransa.

JOE DIMAGGIO – HAFNABOLTASTJARNAN SEM GIFTIST MARILYN MONROE

0

Fæðingardagur bandarísku hafnaboltastjörnunnar Joe DiMaggio (1914-1999) sem vann það afrek að ná ástum Marilyn Monroe og giftast henni 14. janúar 1954. Hjónabandið dugði í 9 mánuði.