Jónatan Hermannsson fyrrum tilraunastjóri Rannsóknarstofnunar landbúnaðarins er 79 ára í dag. Varla líður sá dagur að hann láti ekki hugann reika, raði saman orðum betur en flestir aðrir og birti á Veraldarvefnum. Hér er allt lífið undir:
–
líður dagur
líður vika
líður ár
–
flytjum þau úr bunkanum
sem geymir ókomna tíð
–
yfir í bunkann
sem geymir hið liðna
–
og svo furðulegt
að líkast er
sem því fylgi léttir
–
þá er
þessi dagur
þessi vika
þetta ár
frá
–
ég veit ekki lengur
hvað ég á að halda
–
er lífið bara eitthvað
sem við afplánum
og léttir við hvern dag sem líður?
–
er tilgangur lífsins
þá sá einn
að ljúka því nokkurn veginn skammlaust?
–
eða var það ef til vill
eitthvað fleira?






