Vinsamlega réttið úr sætisbökunum, sögur Óskars Magnússonar, rithöfundar fara beint á topp tíu bóksölulista Eymundson. Óskar er bóndi, stjórnarformaður Eimskips, sóknarnefndarformaður og Guð má vita hvað annað. Hann hefur áður skrifað smásagnasöfnin, Borðaði ég kvöldmat í gær og Ég sé ekkert svona gleraugnalaus.
Í eina tíð sagði Séð og heyrt um þennan þá forstjóra Vodafone að hann væri ,,Virðulegur æringi.“ Það hefur lítið breyst.






