Þriðjudaginn 2. desember kl. 07:30 verða nýjar og glæsilegar sánur opnaðar í Vesturbæjarlaug. Af því tilefni verður frítt í laugina frá 07.00 til 10.00 þann dag, og léttar morgunveitingar og ljúfir tónar í boði. Borgarstjóri mun opna nýju sánurnar við hátíðlega athöfn kl. 07.30 og eru öll hjartanlega velkomin.
.-
Hönnun nýju sánurýmanna var í höndum Hebu Hertervig og Steinunnar Halldórsdóttur hjá VA arkitektum. Þeim tókst að skapa nútímalegar, fallegar og notalegar sánur sem halda þó í upprunalegan anda og sérkenni mannvirkisins.






