Kristín Vala Ragnarsdóttir fyrrum prófessor í sjálfbærni og stjórnarmaður í Landvernd og Landsvirkjun sparar 100% með því að kaupa ekkert í því kaupæði sem rennur á þjóðina á þessum árstíma.
Elísabet Brekkan fjölmiðlakona er á sama máli:

„Það er þessi kaupsýki og tryllingur sem öllu ræður og ekki hægt að kveikja á neinni útvarpsrás án þess að blaðskellandi auglýsingar dynji á manni. Á einni útvarpsstöð í Bandaríkjunum var útvarpsmaður sem hugðist kenna hlustendum sínum bæn…sem hann og gerði og var hún svo hljóðandi: „Góði guð ekki láta mig kaupa neitt í dag.“ Viðkomandi var rekinn korteri seinna.“







