„Nú ræsum við vélarnar,“ segir Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra og ráðherrarnir brosa breitt á mynd sem tekin var á Arnarhóli í dag:
„Lögum vegina og byrjum aftur að bora jarðgöng á Íslandi. Ég er stolt af nýrri samgönguáætlun innviðaráðherra og langþráðu samkomulagi um stofnun innviðafélags til að flýta stærri samgönguframkvæmdum. Það er búið að tala um þetta lengi. En nú er það loksins að gerast.“







