Home Blog Page 55

ÞÚSUND KRÓNUM DÝRARI KLIPPING ANGI MENN EINS OG ÖSKUBAKKAR

0

Ingvi Már Sigríðarson rakari á Hárhorninu á Hlemmi hefur sett upp skilti  sem blasir við þeim sem í stólinn setjast. Þar tilkynnir hann að klippingin sé þúsund krónum dýrari angi viðskiptavinir af tóbaksreyk.

„Ég var orðinn þreyttur á því að fá kúnna hér inn sem spurðu hvort það væri einhver bið. Ef ekki þá fórum þeir út á tröppur og reyktu og skelltu sér síðan í stólinn angandi eins og öskubakki,“ segir Ingvi Már ánægður með árangurinn. Þetta svínvirkar.

SAMLOKA MEÐ HANGIKJÖTI OG LOPAPEYSU

0

Íslenskar hangikjötssamlokur eru vinsælar í túristasjoppum í miðbænum. Þetta eru ekki Sóma eða Júmbósamlokur heldur PickNick samlokur myndskreyttar með munstraðri lopapeysu.

Rækjusamlokurnar eru svo með mynd af litskrúðugum sjávarbotni, roastbeef með eldrauðum nautavöðva osfrv. En hangikjötið með lopapeysunni er langflottust.

EINAR BÁRÐAR SKAMMAR SKATTINN VEGNA KASTRUP

0

„Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu lét fyrir skemmstu loka veitingastað í miðborg Reykjavíkur með aðstoð lögreglu vegna skattskuldar – þrátt fyrir að staðurinn væri með gildan greiðslusamning í gildi við skattayfirvöld og hefði einungis þrjá greiðsludaga eftir,“ segir Einar Bárðarson framkvæmdastjóri SVEIT – samtaka veitinga – og gististaða á Íslandi.

Hér er átt við veitingastaðinn Kastrup á Hverfisgötu þar sem Jón Mýrdal veitingamaður var í forsvari. Og Einar heldur áfram:

„Afleiðingarnar urðu alvarlegar: staðurinn missti vínveitingaleyfi sitt, sem er ein helsta tekjulind hans, og varð þar með enn erfiðara fyrir hann að standa við skuldbindingar sínar við ríkið. Slík vinnubrögð eru ekki aðeins harkaleg og óþörf – heldur beinlínis skaðleg fyrir markmið skattheimtunnar sjálfrar.

Samkvæmt stjórnsýslulögum ber sýslumanni skylda til að rannsaka mál áður en gripið er til íþyngjandi aðgerða. Í þessu tilviki lágu fyrir andmæli og staðfesting á virkum greiðslusamningi, en engu að síður var farið fram með lögregluaðgerð sem setti rekstur fyrirtækisins í uppnám.

Síðan hafa nokkrir aðrir staðir bæst við þar sem embættið hefur hótað lokunaraðgerðum – þrátt fyrir virka og virta greiðslusamninga milli veitingastaðanna og Skattsins. Slíkt verklag sendir röng skilaboð til fyrirtækja sem eru að sýna ábyrga viðleitni til að standa í skilum.

Þá vekur það einnig spurningu um meðalhóf þegar farið er inn á veitingastaði í fullum einkennisbúningi í miðju hádeginu, á meðan gestir hafa pantað mat og jafnvel fengið hann borinn fram. Í þessum tilvikum hefur verið lokað á staðnum á staðnum, gestum vísað út og húsnæðið innsiglað – með tilheyrandi niðurlægingu, tekjutapi og orðsporstjóni. Slíkar aðgerðir hámarka tjón rekstraraðilans og þjóna engum tilgangi öðrum en að valda sem mestu skaða.

Það er einnig tímaskekkja að beita lagaheimild frá árinu 2008 sem heimilar aðgerðir ef skuld er yfir einni milljón króna – fjárhæð sem nú jafngildir um 2,3 milljónum að núvirði. Slík mörk þurfa að endurspegla raunveruleikann og núverandi efnahagsaðstæður.

Stjórnvöld verða að sýna meðalhóf, sanngirni og mannlega nálgun gagnvart fyrirtækjum sem eru að reyna að standa í skilum. Aðgerðir af þessu tagi grafa undan trausti og samvinnu milli stjórnvalda og atvinnugreinar sem þegar býr við afar erfiðar rekstraraðstæður.

Þetta mál ætti að verða til þess að stjórnsýslan staldri við, skoði verkferla sína og spyrji einfaldrar spurningar: þjónar svona aðferð virkilega almannahagsmunum – eða skapar hún bara meiri vanda fyrir alla aðila?“

RAGGI BJARNA OG RAMBLER CLASSIC

0

Það var í mars 1967 sem Guðbjartur Walther H Ólafsson hitti Ragnar Bjarnason dægurlagasöngvara og leigubílstjóra við nýjan bíl hans – Rambler Classic.

„Ragnar sagði að sér fyndist Rambler Classic fallegur og sparneytinn á bensín. Innan fannst honum bíllinn vandaður og fallegur. Mælaborð og sætin, áklæði og honum fannst þetta vera alveg einstaklega skemmtilegur bíll. Nú hafa liðið heil 58 ár síðan hann stóð þarna hjá bílnum sínum.“

HVER ER JÓNA?

0

Þetta lesendabréf birtist í reykvísku dagblaði fyrir löngu en þá stóðu forsetakosningar fyrir dyrum. Höfundur er Jóna Guðmundsdóttir sem þarna sýnir ritfærni og heilbrigða dómgreind.

En hver er Jóna?

FANGAKLEFI SARKOZY – 9 FERMETRAR

0

Sarkozy fyrrum Frakklandsforseti var færður í fangelsi í gær. Fjölmiðlar í Evrópu eru iðnir við að birta myndir og teikningar af fangaklefa forsetans en honum fylgja tveir lífverðir til öryggis.

„Það er ekki fyrrverandi forseti lýðveldisins sem settur er í fangelsi, heldur saklaus maður. Ég er ekki í vafa um að sannleikurinn mun koma í ljós.“
„Það er ekki fyrrverandi forseti lýðveldisins sem settur er í fangelsi, heldur saklaus maður. Ég er ekki í vafa um að sannleikurinn mun koma í ljós.“

Carla Bruni eiginkona Sarkozy fylgdi honum út af heimili þeirra í París þar sem lögreglulið beið fyrrum forseta franska lýðveldisins. Þar kvöddust þau og Sarkozky sagði aðspurður ekki taka annað með sér í fangelsið en tvær bækur, ævisögu Jesú og Greifann af Monte Cristo.

FLAKANDI FERSKT DRAMA OG SÚRNAÐIR DRAUMAR

0

„Þá er komið að því: Bókin Allt sem við hefðum getað orðið er komin í verslanir! Það tók mig ekki nema tíu ár að skrifa hana,“ segir pistlahöfundurinn, fjölmiðlastjarnan og rithöfundurinn Sif Sigmarsdóttir í London:

„Ég ætla því að njóta umstangsins kringum jóalbókaflóðið ef það skyldu vera tíu ár í næstu bók. Ég hefði ekki getað ímyndað mér betri jólagjöf í ár en ummæli Hallgríms Helgasonar um bókina:

„Leggið frá ykkur börnin, símann og fjarstýringuna því hér er bók sem heimtar daginn! Flakandi ferskt spennudrama um skuggahlið listarinnar og súrnaða drauma.“

Takk, Hallgrímur.

Allt sem við hefðum getað orðið fjallar um tilraunir okkar til að halda deyjandi draumum okkar á lífi. Einu sinni átti ég mér þann draum að spila í hljómsveitinni Nirvana. Sá draumur lifði ekki af unglingsárin – en ég á þó ennþá þennan forláta stuttermabol um það sem ég hefði getað orðið … ef ég hefði einhvern tímann látið verða af því að læra á rafmagnsgítar.“

CATHERINE DENEUVE (82)

0

Franska leikkonan Catherine Deneuve er 82 ára í dag. Hún hefur starfað með helstu leikstjórum Evrópu, Bunuel, Truffaut og Polanski og alltaf sjálfri sér lík, dálítið dularfull, jafnvel döpur en alltaf falleg.

LOFTLEIÐAHÚFAN KOMIN

0

Biðin er á enda, Loftleiðahúfan er komin! Þær eru bláar, rauðar, svartar og hvítar. Merkið er ofið. Eins og það á að vera. Verð 3.906 kr.

Panta hér!

HÓPAKSTUR TRABANT – SKYNSEMIN RÆÐUR

0

Trabant eigendur í hópakstri fyrir löngu. Eigendur Trabant bíla höfðu með sér félag sem nefndist Skynsemin ræður og voru það orð að sönnu.

Þarna er bílalestin á leið niður af Sogavegi þar sem Trabant umboði Ingvars Helgasonar var einmitt í brekkunni rétt fyrir ofan.

Trabant bílarnir voru austur þýskir fólksbílar sagðir gerðir úr plasti með tvo bensíntanka, annar til vara þegar hinn tæmdist.