Home Blog Page 54

LINCOLN SKIPT ÚT FYRIR TRUMP

0

Bandarískur forsetaleikur gervigreindarinnar og margir trúa sem nýju neti.

GAFST UPP Á GÖNGUSKÓNUM

0

Einhver gafst upp á gönguskónum sínum við Hallgrímskirkju og skildi þá eftir ofan á ruslatunnu.

Mætti endurnýta.

Það eru enn fjórir skósmiðir í Reykjavík.

HILLARY (78)

0

Hillary Clinton fyrrum forsetafrú Bandaríkjanna er 78 ára í dag. Hún fær óskalagið My Boy Lollipop.

VEGAN, SORPFLOKKUN OG STEFNULJÓS

0

Fjöllistamaðurinn Mummi Týr er maður margra skoðana. Þetta datt honum í hug í morgun:

„Þessir andskotans vegan-istar alltaf að troða sýnum lífsgildum yfir á okkur! Það er mitt val hvað ég borða og heilbrigðiskerfið lagar mig svo bara. Mitt val hvar ég hendi rusli, eða hvað þá að nota stefnuljós, það kemur engum við hvar ég ætla að beygja!“

KONFEKTMOLI MEÐ MALT OG APPELSÍN FYLLINGU

0

Konfektmolar eru alls konar en þessi dálítið spes. Gamli Nói kynnir til leiks nýjan hátíðarmola með Malt og Appelsín fyllingu. Jólalegt. Takmarkað upplag.

REYNIR GÖNGUGARPUR (77)

0

Reynir Pétursson landsþekktur göngugarpur kenndur við Sólheima, er 77 ára í dag. Reynir gekk hringveginn allan 1985 til að vekja athygli á stöðu fatlaðra . Hann hefur hefur athyglisverðar skoðanir á ýmsu eins og þessu:

„Mér finnst að allir læknar eiga að kunna til prests því mikill kærleikur skiptir máli. Þannig að ef læknar geti ekki læknað alla sjúklinga þá eiga þeir að biðja fyrir þeim. Í Jesú nafni. Amen.“

Reynir fær óskalagið I Walk the Line.

BJÓÐA 15 ÞÚSUND KRÓNUR FYRIR AÐ TAKA LÝSI MEÐ SÍTRÓNUBRAGÐI

0

Matís leitar á nú að þátttakendum til að taka þátt í rannsókn á vegum Háskóla Íslands og Lipid Pharmaceuticals ehf. á virkni lýsis með viðbættum fríum fitusýrum í baráttunni gegn kvefi og flensum.

Þátttakendum verður skipt í tvo jafnstóra hópa. Annar hópurinn fær Omega Cold lýsi til að taka tvisvar sinnum á dag í fjóra mánuði, eina skeið (5 til 7 ml) í hvort sinn. Hinn hópurinn er viðmiðunarhópur og tekur jurtaolíu á sama hátt í stað lýsisins. Þátttakendur fá ekki upplýsingar um hvorum hópnum þeir tilheyra.

Stefnt er að því að hefja rannsóknina í lok nóvember eða byrjun desember. Tekið er fram að þeir þátttakendur sem ljúki rannsókninni fá 15 þúsund króna gjafabréf sem þakklætisvott.

Skilyrði fyrir þátttöku eru að geta tekið lýsi með sítrónubragði, vera á aldursbilinu 18-80 ára og almennt við góða heilsu.

MYND DAGSINS

0

Arnarhóll 24.10 2025.

BILL WYMAN (89)

0

Bill Wyman, bassaleikari Rolling Stones frá upphafi (1962) þar til hann hætti (1993), er afmælisbarn dagsins, 89 ára. Hann er alltaf að semja og spila og gaf þetta út í fyrrasumar:

HUNDARNIR SKÍTA Á PARKA

0

Skilti Parka um gjaldtöku á bílastæði á einkalóð í miðju íbúðahverfi við Drafnarstíg hefur valdið óánægju meðal nágranna sem telja að sér þrengt.

Nú er svo komið að hundarnir í hverfinu eru farnir að skíta á undirstöðu skiltisins án þess að eigendurnir þrífi upp eftir þá.

Sjá tengda frétt.