Þá hefur Trump tekir af skarið. 9. október verður framvegis Dagur Leifs Eiríkssonar, kristna víkingsins sem fann Ameríku 400 árum á undan Kólumbusi.
EINAR ÖRN (63)
Fjöllistamaðurinn Einar Örn Benediktsson er afmælisbarn dagsins (63). Hann var í Sykurmolunum með Björk.
HUGSAR BETUR UM BÍLINN EN UMHVERFIÐ

Viðskiptavinur Póstsins kom akandi og ákafur að ná í pakka sem hann hafði pantað að utan. Reif hann upp á staðnum og stökk svo upp í bílinn en skildi umbúðirnar eftir á stéttinni.
Við athgun á umbúðunum kom í ljós að þetta voru sérhannaðir bónpúðar í ýmsum litum.
„Hann hugsar betur um bílinn en umhverfið,“ sagði kona sem varð vitni að atburðinum.
JULIA ROBERTS (58)
Stórstjarnan Julia Roberts er 58 ára í dag. Um tíma hæstlaunaðasta leikkonan í Hollywood – Pretty Woman, Erin Brockovich svo eitthvað sé nefnt.
TJÖRUHÚSIÐ MEÐ LESTRARÁTAK
Tjöruhúsið á Ísafirði kynnir lestrar – og hreystiátak á næstu dögum. Sértiboð á mat: Hádgismatur 3.000 krónur. Kvöldverður 5.000 krónur.
„Það gengur þannig fyrir sig að þau sem framvísa bókasafnsskírteini frá bókasafni Ísfirðinga eða nærsveitunga (innan fjórðungsins) fá matinn á þessum kostakjörum. Þetta gildir einnig um þá sem framvísa sundkorti/líkamsræktarkorti frá sömu slóðum – Ísafjarðarbæ, Bolungarvík eða Súðavík,“ segja kokkarnir í eldhúsinu.
Gildir fimmtudaginn 30. október til og með laugardagsins 1. nóvember.
GÍSLI MARTEINN FYRIR 21 ÁRI
Gísli Marteinn er ódrepandi á skjánum. Hér á RÚV fyrir 21 ári. Tekur á móti fjöllistamanninum Snorra Ásmundsson og hinir gestirnir tveir fylgjast með – Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir, þá nýkjörin Ungfrú Ísland, og í framhaldinu ein skærasta fjölmiðlastjarna þjóðarinnar og Eiríkur Jónsson…
SIMON LE BON (67)
Simon Le Bon söngvari Duran Duran varð eldi borgari í dag – 67 ára. Fæddur í Bushey Hertfordshire á Englandi 1958.
VETRARKOMA SKÁLDSINS
Hæg vetrarkoma
hálka á göngustígum
hinsta lauf fellur.
–
pjetur hafstein lárusson
GRÍMUR VAR Á LÖGGUVAKT FYRIR VESTAN ÞEGAR SNJÓFLÓÐIÐ FÉLL Á FLATEYRI
„Í dag eru þrjátíu ár frá snjóflóðinu mannskæða sem féll úr Skollahvilft yfir stóran hluta af byggðinni á Flateyri. Ég var þá starfandi í lögreglunni á Ísafirði og á vakt þessa nótt,“ segir Grímur Grímsson alþingismaður Viðreisnar og fyrrum yfirmaður í lögreglunni:
„Þessi alvarlegi atburður líður mér seint úr minni. Mikið reyndi á íbúa Flateyrar en utan að komandi aðstoð barst þeim ekki fyrr en um fimm klukkustundum eftir að flóðið féll. Hugur minn er hjá Flateyringum, einkum þeim sem misstu nákomna.“

