Home Blog Page 52

„MISS ELLIE“ Í DALLAS (103)

0

Fæðingardagur Barböru Bel Geddes (1922-2005) sem fór með hlutverk  Miss Ellie Ewing í sjónvarpsþáttunum Dallas sem eru líklega þeir frægustu og vinælustu sem framleiddir hafa verið í Bandaríkjunum – svo árum skipti. Á leiksviði sló hún einnig í gegn í hlutverki Maggie í Broadway uppfærslunni á Cat on a Hot Tin Roof auk kvikmyndasigra í Vertigo og Remember Mama.

GUÐMUNDUR Í BRIMI TIL FYRIRMYNDAR

0

BRIM hlaut Hvatningarverðlaun CrediInfo og Festu – miðstöðvar um sjálfbærni, fyrir framúrskarandi framlag til sjálfbærrar þróunar og þá einkum fyrir metnaðarfulla endurfjármögnun að fjárhæð 33 milljarða króna. Guðmundur Kristjánsson, forstjóri Brims, tók við verðlaununum við hátíðlega athöfn.

HANNA MÁLAR YFIR MYNDIR ÚR GÓÐA HIRÐINUM

0

Hanna Hlíf Bjarnadóttir opnar sýningu á málverkum í Listhúsi Ófeigs, Skólavörðustíg 5 laugardaginn 1. nóvember kl. 15 – 17.

Á sýningunni eru verk máluð yfir gamlar myndir og gömul verk sem hún kaupir í ramma á nytjamörkuðum.

Verkin eru af blómum í fallegum litríkum vösum. Margir blómvendirnir virðast þokukenndir á meðan skörp og litrík mynstrin á vösunum eru skýr.  Sýningin er haldin í tengslum við sextíu ára afmæli Hönnu Hlífar 1. nóvember. Sýningin er opin á verslunartíma Ófeigs Gullsmiðju.

KOKKALANDSLIÐIÐ KVEÐUR BJARNA

0

„Það er með djúpri þökk og virðingu sem minnst er Bjarna Geirs Alfreðssonar, veitingamanns og frumkvöðuls, sem lést á dögunum,“ segir á heimasíðu Kokkalandsliðsins:

„Bjarni Geir fæddist í Reykjavík árið 1951 og helgaði líf sitt matargerð, þjónustu og mannlegum samskiptum. Hann var menntaður matreiðslumeistari, útskrifaður frá vetingastaðnum Óðali við Austurvöll, og var fyrsti neminn sem lauk þaðan námi árið 1972.

Eftir útskrift hóf hann fjölbreyttan og litríkan starfsferil á mörgum kunnuglegum stöðum, meðal annars á Naustinu, á Skrínunni við Skólavörðustíg, á Ask við Laugaveg, og hann stofnaði sjálfur veitingastaðina Grillborg og Versali í Kópavogi, Stélið í Tryggvagötu, Rauða sófann á Hlemmi og Árnesti í Ármúla. Verk hans báru keim af eldmóði, hugviti og trú á íslenska matarmenningu.

Frá árinu 1996 rak hann veitingasöluna Fljótt og Gott á BSÍ, sem varð fljótt eitt kunnasta kennileiti ferðamanna og Íslendinga á ferðinni. Bjarni tók við rekstrinum á tíma þegar veitingasalan var að dragast saman, en með einurð, vinnusemi og ástríðu fyrir góðum mat tókst honum á innan við tveimur árum að snúa rekstrinum við og byggja upp blómlega starfsemi. Hann lagði áherslu á íslenskar hefðir í einföldu og hlýju umhverfi, og sagði oft með brosi að hann vildi bjóða fólki upp á „kjamma og kók“  sem varð landsþekkt slagorð. 

Bjarni var einnig lengi viðlóðinn kaffistofu Samhjálpar, þar sem hann lagði sig fram um að styðja þá sem áttu um sárt að binda. Þar nýtti hann bæði fagþekkingu sína og hlýtt hjarta til að skapa hlýlegt umhverfi og mannsæmandi máltíðir fyrir gestina. Starf hans þar var ekki aðeins þjónusta heldur köllun, og endurspeglaði trú hans á virðingu, umhyggju og reisn allra manna.

HERMANN OG SVAVA FAGNA BRÚÐKAUPSAFMÆLI Í HITABELTINU

0

„Í dag er gleðidagur, 4 ár frá brúðkaupsdeginum okkar sem var mikil gleðiveisla,“ segir Hermann Guðmundsson forstjóri Kemi sem heldur upp á daginn í hitabeltinu með sinni ástkæru Svövu Gunnarsdóttur:

„Þar sem við erum stödd í hitabeltinu þá verður farið í golf á okkar heimavelli og síðan á frábæran veitingastað í kvöld þar sem við skálum fyrir frábærum 4 árum og skipuleggjum næsta ár. Það er mjög skemmtilegt að hafa gaman!“

SJÚSKAÐAR EN HEIÐARLEGAR LEIFTURMYNDIR

0

„Stemning sem var“ er yfirskrift sýningar listamannsins Guðmundar Einars sem stendur yfir í Skotinu á Ljósmyndasafni Reykjavíkur 30. október til 31. desember 2025. Á henni birtast okkur það sem hann kallar: „sjúskaðar en heiðarlegar leifturmyndir úr nálægri en rómantískri fortíð.“

Á tímabilinu 2010-2018 tók Guðmundur Einar mikinn fjölda mynda af fólki og hlutum sem gripu auga hans – aðallega í Reykjavík en einnig í Lundúnum og New York. Myndirnar, sem hann framkallaði ekki fyrr en nýverið, fanga stemningu þessa tímabils, og þegar hann sá þær áttaði hann sig á því að fyrir honum væru þetta dýrgripir.

MARADONA (65)

0

Fæðingardagur Diego Armando Maradona (1960-2020), eins þekktasta knattspyrnumanns sögunnar. Fæddur í Lanús í Argentínu og hefði orðið 65 ára í dag. Einstök boltafimi hans og marksækni færði honum frægð og frama í treyju no. 10 en hann var einnig stuðbolti í einkalífinu sem keyrði stundum fram úr hófi.

TRUMP TIL LIÐS VIÐ LEIF HEPPNA

0

Þá hefur Trump tekir af skarið. 9. október verður framvegis Dagur Leifs Eiríkssonar, kristna víkingsins sem fann Ameríku 400 árum á undan Kólumbusi.

EINAR ÖRN (63)

0

Fjöllistamaðurinn Einar Örn Benediktsson er afmælisbarn dagsins (63). Hann var í Sykurmolunum með Björk.

SUMARSNJÓR Í JÚNÍ 1950

0

Siglufjarðarskarð Fljótamegin 20. júní 1950. Snjódýpt 5-8 metrar.