Hanna Hlíf Bjarnadóttir opnar sýningu á málverkum í Listhúsi Ófeigs, Skólavörðustíg 5 laugardaginn 1. nóvember kl. 15 – 17.
Á sýningunni eru verk máluð yfir gamlar myndir og gömul verk sem hún kaupir í ramma á nytjamörkuðum.
Verkin eru af blómum í fallegum litríkum vösum. Margir blómvendirnir virðast þokukenndir á meðan skörp og litrík mynstrin á vösunum eru skýr. Sýningin er haldin í tengslum við sextíu ára afmæli Hönnu Hlífar 1. nóvember. Sýningin er opin á verslunartíma Ófeigs Gullsmiðju.







