Home Blog Page 51

EITT HESTAFL Í BENSÍNLEYSI

0

Árið 1941 varð bensinlaust í Hollandi. Seinni heimstyrjöld. Eldsneytisskortur víða um lönd og margar snjallar lausnir litu dagsins ljós. Í þessu tilviki var eitt hestafl nóg.

ÞKRG (38)

0

Þordís Kolbrún Reykdal Gylfadóttir er afmælisbarn dagsins (38). Hún var ráðherra í átta ár, frá 2017-2024 og varaformaður Sjálfstæðisflokksins frá 2018-2025. Hún er fyrrverandi utanríkisráðherra, fjármálaráðherra, dómsmálaráðherra og ferðamála-, nýsköpunar- og iðnaðarráðherra.  Hún er ofan af Skaga og fær því óskalag með Dumbó og Steina sem voru upp á sitt besta á Akranesi þegar hún var að fæðast.

LULU (77)

0

Skoska söngstjarnan Lulu er afmælisbarn dagsins (77). Hún ljáði Bond myndinni The Man with the Golden Gun rödd sína í titillagi, tók þátt í Eurovision 1969 með lagið Boom Bang-a-Bang en þekktasta er þó To Sir with Love úr samnefndri kvikmynd.

HRÁMJÓLK HAALAND OG EGILL SKALLAGRÍMSSON

0

Úr ársfjórðungsritinu Hrepparígur:

Fræðingar hafa leitt í ljós meinlega villu í Egils sögu. Þar er hrámjólk einfaldlega nefnd mjólk! Þetta skilur auðvitað enginn Íslendingur! Það er ekki von að frændi vor Haaland, þó víðlesinn sé, vari sig á þessum óþverra – og City sé með allt niðrum sig! Og Íslendingar gegnum aldirnar…

Upphafleg frétt um Haaland og hrámjólkina.

VEITINGAHÚSARÝNI GUNNARS

0

„Á veitingastöðum virðast vertarnir telja að maturinn einn skipti máli. Eða mestu máli. Má vera. Mörg önnur atriði breyta hins vegar miklu um það hvort gesturinn fer sæll og saddur frá borði,“ segir Gunnar Salvarsson fjölmiðlamaður og ljósmyndari:

„Fernt kemur upp í hugann, tónlistin, glösin, hljóðvistin og þjónustan. Með góðum vinum úti að borða er fátt jafn ömurlegt og bassa- og trommudrunur úr hátölurum þegar löngunin er sú hjá gestunum er  að eiga notalegt kvöld og spjall um daginn og veginn. Falleg stór glös gera gæfumun, lítil vínglös eru óviðeigandi, jafnvel þótt ekki sé drukkið vín. Hljóðvistin er lykilatriði, á nokkrum stöðum verður skvaldrið í gestum svo yfirþyrmandi að það jaðrar við hættumörk á desibil skalanum. Og fólk nær ekki að tala saman, tengjast. Um þjónustuna þarf ekki að hafa mörg orð. Ef skammtímaminni þjóns leiðir til þess að gesturinn gleymist verður upplifunin aldrei ánægjuleg.“

SNJÓMOKSTUR INDRIÐA

0

Indriði litli fór út að moka snjó í gær með pabba sínum. Svo fékk hann kakóbolla á eftir á Kaffifélaginu á Skólavörðustíg og var ánægður með. En gleymdi snjóskóflunni þegar hann fór. Hún bíður eftir honum á staðnum.

SJÁLFSTÆÐISMENN LEITA AÐ NÝJUM HÖFUÐSTÖÐVUM

0
Pawel þingmaður.

„Ég sé þær skoðanir koma fram meðal harðkjarna Sjálfstæðismanna að nýjar höfuðstöðvar flokksins þurfi alls ekki að vera í hinum alræmda „miðbæ“. Það er réttmæt athugasemd,“ segir Pawel Bartoszek þingmaður Viðreisnar:

„Raunar er ekkert sjálfgefið að höfuðstöðvar stjórnmálaflokks þurfi að vera í Reykjavík, á höfuðborgarsvæðinu, ja, eða yfirhöfuð í þéttbýli. Fínt að hugsa út fyrir boxið í þeim efnum.“

EINAR ÞÓR JÓNSSON (66)

0

Einar Þór Jónsson, baráttumaður, mannvinur og gleðigjafi er afmælisbarn dagsins (66). Hann er stærrií sniðum en margur hyggur – enda á hann kyn til:

Einar Þór fæddist í Bolungarvík, barnabarn Einars Guðfinnssonar útgerðarmanns sem var allt í öllu í bænum og Einar litli því hluti af ættarveldinu. Hann varð þó ekki sá erfðaprins sem hann var borinn til heldur þurfti fljótlega að berjast fyrir sjálfum sér og takast á við erfiðan móðurmissi og samkynhneigð í litlu sjávarþorpi.

„MISS ELLIE“ Í DALLAS (103)

0

Fæðingardagur Barböru Bel Geddes (1922-2005) sem fór með hlutverk  Miss Ellie Ewing í sjónvarpsþáttunum Dallas sem eru líklega þeir frægustu og vinælustu sem framleiddir hafa verið í Bandaríkjunum – svo árum skipti. Á leiksviði sló hún einnig í gegn í hlutverki Maggie í Broadway uppfærslunni á Cat on a Hot Tin Roof auk kvikmyndasigra í Vertigo og Remember Mama.