Kanadíska söngkonan Joni Mitchell er afmælisbarn dagsins (82). Engin söngkona eða lagasmiður hefur komist með tærnar þar sem hún hefur haft hælana á ferli sem spannar áratugi. Hafa þó margar reynt. Hér er hún kornung í sjónvarpsþætti 1969:
BÆNDURNIR Á BÓLSTAÐ FÁ ROSALEGA RAKSTRARVÉL FRÁ FERGUSON
Búvélar ehf. tilkynna:
–

Í sumar var fyrsta vélin af nýrri kynslóð af rakstrarvélum frá Massey Ferguson afhent í Landeyjarnar til þeirra Bjarkar og Skarphéðins á Bólstað.

JÓNAS SEN (63)
Jónas Sen tónlistarmaður, bakhjarl Bjarkar í spileríi og gagnrýnandi, er afmælisbarn dagsins (63). Hann fór á tónleika með Karlakórnum Heimi, Álftagerðisbræðrum og Óskari Péturssyni í Eldborg í Hörpu á sunnudagin og lýsti þeim sem þjóðlegum „…eins og skyr með sykri. Það var jú kunnuglegt, þykkt og dálítið bragðlaust.“
Niðurstaðan var þessi:
„Tónleikarnir í Eldborg voru eins og gamall vinur sem kemur í heimsókn: þægilegur í framkomu, en maður skynjaði undirliggjandi þreytu. Í söng karlakórsins var bergmál af gömlum dugnaði og áræði; raddirnar báru enn vott um ástríðu og samheldni. En þegar Álftagerðishópurinn, fiðlan og hammondinn tóku við, varð allt að hikstandi minningu um það sem eitt sinn var. Þetta var ekki hátíð, heldur nostalgískt augnablik sem minnti á að karlakóramenningin lifir ennþá, en á yfirdrætti. Hún þarf nýtt eldsneyti, ferska rödd og djarfari túlkun til að hrífa aftur, annars verður hún aðeins skrautmunur á safni. Kórinn vildi auðheyrilega gleðja, en náðu aðeins að vekja söknuð. Eða með öðrum orðum: þegar tónleikar láta mann hugsa meira um SÁÁ en Sigvalda Kaldalóns, þá hefur eitthvað farið úrskeiðis.“
Jónas fær óskalag með Karlakórnum Heimi:
TVÍFARI MAMDANI Á ALÞINGI
„Það er full astæða til að óska Zohran Mamdani nýkjörnum borgarstjóra New York til hamingju með glæsilegan sigur,“ segir Dagur B. Eggertsson fyrrum borgarstjóri í Reykjavík og nú þingmaður og bætir við:
„Og jafnframt að óska Sigurði Erni Hilmarssyni þingmanni Sjálfstæðisflokksins til hamingju með að vera sláandi líkur honum með þetta ræktarlega skegg.“
–
Sigurður Örn er sonur Hilmars Þórs Björnssonar arkitekts og þar með bróðir sjónvarpsstjörnunnar Maríu Sigrúnar Hilmarsdóttur.
BORGARSTJÓRINN Í LONDON MERKIR LESTARSTÖÐVAR Á ARABÍSKU

Sigfús Arnþórsson píanóleikari og rithöfundur frá Akureyri er ötull fréttaritari á eigin vegum búsettur í Englandi með næmt fréttanef. Hann sendir þessa mynd og segir:
„Shadiq Khan borgarstjóri í London er bæði sósíalisti og múslimi. Hann er að breyta merkingum á neðanjarðarlestarstöðvum í austur London. Svona til að minna Englendinga á að þeir eiga ekkert í Englandi. Sósíalísk alþýða heimsins á England. Auðvitað.
Þetta er Whitechapel Station.“
LILJA PÁLMA MEÐ BESTA STÓÐHESTINN
„Þeir eru ekkert að grínast með þessa bikara hjá Fáki,“ segir Lilja Pálmadóttir en Grásteinn hennar frá Hofi á Höfðaströnd er hæst dæmdi 6 vetra stóðhestur ársins hjá Fáki. Grásteinn er undan Gjöf frá Hofi og Fannari frá Hafsteinsstöðum.
„Snilldarlega sýndur af Sigrúnu Rós Helgadóttur,“ bætir Lilja við eins og sjá má hér að neðan:

ART GARFUNKEL (84)
Art Garfunkel datt í lukkupottin þegar hann kynntist tónlistargoðsögninni Paul Simon. Samstarf þeirra skilaði árangri, blómstraði og skolaði Garfunkel inn á Top 100 listann hjá tímaritinu Rolling Stone yfir bestu söngvara í heimi árið 2008. Art Garfunkel er 84 ára í dag.
SJÁLFSTÆÐISMENN MÆTI MEÐ KÚBEIN OG HAMRA Í VALHÖLL
RAGNAR KJARTANSSON SÝNIR Í SJANGHÆ
Myndlistarstjarnan Ragnar Kjartansson er á leið til Kína þar sem hann tekur þátt í „15th Shanghai Biennale“ unddir yfirskriftinni “Does the flower hear the bee?” .
Viðburðurinn verður í Orkustöð listarinnar (The Power Station of Art) í Sjanghæ og stendur frá 8. nóvember næstkomandi til 31. mars 2026.
SURVIVAL OF THE FITTEST MÁ EKKI VERÐA SURVIVAL OF THE FATTEST!

„Risafyrirtæki leitast við að verja hagnað sinn með því að velta vandanum yfir á samfélagið, atvinnuleysistryggingar,“ segir Ragnar Önundarson samfélagsrýnir og fyrrum bankastjóri – sjá tilefnið hér. Og Ragnar heldur áfram:

