Home Blog Page 49

ÞÓRHALLUR STOFNAR MINNSTA FJÖLMIÐIL LANDSINS

0

Þórhallur Gunnarsson margreyndur stjórnandi ljósvakamiðla um áratugaskeið hefur stofnað minnsta fjölmiðil landsins sem hann nefnir Klaki Stúdíó en Klaki heitir heimiliskötturinn hans. Þórhallur tilkynnir þetta stoltur á 62. afmælisdegi sínum í dag:

„Ég er í þessum töluðu orðum að opna nýtt stúdíó sem heitir Klakinn Stúdíó. Vefslóðin er einfaldlega: https://www.klakinnstudio.is/

Bókakjallarinn er svo nýr sjónvarps/hlaðvarpsþáttur sem má finna á vefsíðunni.
Fyrstu þrír þættirnir eru komnir í loftið en samtals verða þeir 24 fyrir áramót. Einstaklega skemmtilegir viðmælendur sem ræða uppáhaldsbækurnar sínar á ólíkum æviskeiðum og svo fer spjallið í allar áttir.“
Klakinn Stúdíó er mjög vel búið hljóð og myndver og hvetur Þórhallur alla sem eiga sér draum um eigið hlaðvarp að hafa samand. Þórhallur leggur úr höfn með þrjá sterka bakhjarla, Kalda, Storytell og Reykjavík Foto.

GEÐLÆKNIR HRÍFST AF SÁLNASAFNARANUM

0
Óttar Guðmundsson geðlæknir las á dögunum nýútkomna bók eftir Þór Tulinius leikara, Sálnasafnarann, og hreifst af. Í framhaldinu birti hann ritdóm af dýrari sortinni:
Ræðumenn og rithöfundar hafa það fyrir sið að vitna í fræga menn máli sínu til stuðnings. Írska skáldið Óskar Wilde er efstur á lista yfir þá sem einkum er vísað til. Einhvern tíma á hann að hafa sagt að bækur væru annað hvort leiðinlegar eða skemmtilegar og ekkert þar á milli. Hvort sem þetta er rétt tilvitnun í Óskar eða ekki, höfðar hún til mín. Með árunum hafa bækur nefnilega orðið æ leiðinlegri. Ég hef ekki lengur tölu á þeim bókum eftir valinkunn gáfumenni sem ég hef byrjað á en gefist upp sakir leiðinda. Bækurnar fönguðu ekki athygli mína vegna málalenginga, tilgerðar eða hugmyndaleysis og fyrirsjáanleika höfundarins.
Ég las í vikunni bók Þórs Tulinius leikara og rithöfundar, Sálnasafnarinn sem kom út á dögunum. Þetta er virkilega skemmtileg bók sem grípur lesandann og sleppir honum ekki. Bókin fjallar um þjóðsagnakenndan prest, sr. Ebeneser sem er gæddur ýmsum furðuhæfileikum. Þessa gáfu sína nýtir hann bæði til góðs og ills. Hann beitir ofbeldi sjálfur og berst gegn ofbeldi með dularfulla krafta sína að vopni. Bókin gerist á löngu tímabili og flakkar á milli tímaskeiða á sérlega skemmtilegan hátt. Hugarheimur og veröld prestsins er sneisafull af misnotkun, kynlífi, alls konar órum og mikilli dramatík. Ein ástkvenna hans missir vitið vegna svika og undirförli klerksins. Ég dáðist mjög af heimildavinnu höfundar og hversu raunsæja mynd hann dregur af lífinu í litlu þorpi úti á landi þar sem allir þekkja alla alltof vel.
Þessa bók las ég meira og minna í einum rikk mér til ánægju. Nú orðið les ég varla bók nema pirrast yfir einhverjum rökleysum eða lágkúru höfundarins. Sálnasafnarinn rann ljúflega niður og ég þurfti aldrei að leggja hann frá mér til að jafna mig á einhverjum neikvæðum hughrifum.
Þetta er frábær frumraun hjá Þór og ég óska honum innilega til hamingju.

RICHARD BURTON (100)

0

Velski leikarinn Richard Burton (1925-1984) hefði orðið 100 ára í dag. Einn magnaðist leikari sinnar kynslóðar sem sló fyrst í gegn á sviði sem Hamlet 1964. Hann þótti sjálfgefinn arftaki Sir Laurence Olivier sem sá besti í bransanum en varð fótaskortur á framabraut vegna óhóflegrar dagdrykkju sem aldrei sá fyrir endann á. Í því ljósi var hann oft metinn af gagnrýnendum og þess vegna fékk hann kannski aldrei Óskarsverðlaunin. Honum tókst þó að verða frægasti elskhugi í heimi þegar hann fór að slá sér upp með Elizabetu Taylor við gerð kvikmyndarinnar Kleópötru en þá voru þau bæði í hjónabandi með öðrum og heimurinn stóð á öndinni af hneykslan. Ekki skánaði það þegar hann keypti dýrasta demanthring í heimi handa ástinni sinni og lenti á forsíðum allra dagblaða veraldar. Hann fær óskalagið Söngur um lífið með Rúnari Júl.:

NÝI RÍKISLÖGREGLUSTJÓRINN OG ÓLAFUR RAGNAR ERU BRÆÐRASYNIR

0
Grímur Hergeirsson, nýr ríkislögreglustjóri, og Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrum forseti Íslands, eru bræðrasynir. Það er svona í pottinn búið skv. upplýsingum frá Sigurði Boga Sævarssyni ættfræðingi m.m.:
Faðir Gríms ríkisslögreglustjóra var Hergeir Kristgeirsson og Kristgeir átti annan son sem var Grímur rakari faðir Ólafs Ragnars forseta. Nýi ríkislögreglustjórinn og forsetinn fyrrverandi eru því bræðrasynir.
Systkini Gríms eru Ragnheiður sem er kennari í félagsráðgjöf við HÍ, Þórir handboltaþjálfari í Noregi og Guðrún býr á Selfossi, vinnur þar við velferðarþjónustu. Grímur er upphaflega lærður húsasmiður, en fór svo í lögguna og lögfræði.

HEIMIR KAUPIR KÓTILETTUR – VARÐ HISSA

0
Heimir Karlsson morgunhani á Bylgjunni fór í kótilettu leiðangur og það gekk svona fyrir sig:
„8 litlar – má jafnvel færa rök fyrir því að þær séu mjög litlar (608 gr) – foreldaðar lambakótilettur í raspi á kr. 3.343 (Kr/kg 5499)!
Burtséð frá kaupmáttar-hjali og að allir hafi það svo gott á Íslandi (að sögn sumra), er hægt að rökstyðja þetta háa verð?
Ef einhver getur það svo réttlætið skíni skært, þá er ég alveg til að hætta að vera hissa á þessu. Þá væri gaman að vita hvað situr mikið eftir af þessu hjá bóndanum.“

HRAFNHILDUR INGA OG HIMINBLÁMINN

0

Hrafnhildur Inga Sigurðardóttir myndlistarkona úr Fljótshlíð opnaði málverkasýningu í Gallerí Fold á Rauðarárstíg í gær að vðstöddu fjölmenni. Þarna voru Guðmundur Árni Stefánsson fyrrum sendiherra á Indlandi, Daði Guðbjörnsson myndlistarmaður og séra Önundur Björnsson fyrrum prestur í Fljótshlíð svo einhverjur séu nefndir

Sýningin stendur til 29. nóvember og er augnayndi.

MONROE (28)

0

Fáséð mynd af Marilyn Monroe sem þarna er 28 ára við tökur á kvikmyndinni River Of No Return 1954. Og tók svo lagið.

Hún lést fyrir aldur fram, 36 ára.

BISKUP BLESSAR BJÖRGUNARSVEITIR

0
„Við sem búum á Íslandi megum vera stolt af björgunarsveitunum okkar og það er gott að geta styrkt þær með kaupum á neyðarkalli,“ segir Guðrún Karls Helgudóttir biskup Íslands í morgunhugleiðingu:
„Í ár er neyðarkallinn til minningar Sigurðar Kristófers sem lét lífið við straumvatnsbjörgunaræfingar. Blessuð sé minning hans.
Takk fyrir ykkur björgunarsveitarfólk! Megið þið vera Guð falin í störfum ykkar.“

LÍFSBJÖRG ÚTFARARSTJÓRANS

0

„Í dag eru 30 ár síðan ég tók bestu ákvörðun lífs míns og hætti að nota áfengi. Leitaði mér aðstoðar og allt breyttist til betri vegar,“ segir Sverrir Einarson landsþekktur útfararstjóri sem í framhaldinu stofnaði Útfararstofu Íslands en hafði þá starfað við fagið í 15 ár:

„Í starfi mínu sem útfararstjóri síðastliðinn 45 ár hef ég séð ótrúlega mörg tilvik hvernig fíknin hefur fellt marga sem ekki hafa náð tökum á sínum málum eða ekki fengið næga aðstoð. Ég var heppinn og þakka fyrir það.“

JÖKULL Í KALEO FÉKK NÝJAN DEFENDER

0

Jökull í Kaleo fékk afhenta nýjustu útgáfuna af Defender hjá BL á dögunum en  hljómsveitin mun koma fram á einstökum Defender viðburði í Bandaríkjumum síðar í mánuðinum.

Jökull var ánægður með bílinn eins og sjá má og bílasalinn líka sem hafði á orði: „Það er óhætt að segja að Jökull hafi átt spennandi ferðalag á tónlistarbrautinni og við óskum honum góðrar ferðar hvert sem leiðin liggur.“