Þórhallur Gunnarsson margreyndur stjórnandi ljósvakamiðla um áratugaskeið hefur stofnað minnsta fjölmiðil landsins sem hann nefnir Klaki Stúdíó en Klaki heitir heimiliskötturinn hans. Þórhallur tilkynnir þetta stoltur á 62. afmælisdegi sínum í dag:
„Ég er í þessum töluðu orðum að opna nýtt stúdíó sem heitir Klakinn Stúdíó. Vefslóðin er einfaldlega: https://www.klakinnstudio.is/
Bókakjallarinn er svo nýr sjónvarps/hlaðvarpsþáttur sem má finna á vefsíðunni.
Fyrstu þrír þættirnir eru komnir í loftið en samtals verða þeir 24 fyrir áramót. Einstaklega skemmtilegir viðmælendur sem ræða uppáhaldsbækurnar sínar á ólíkum æviskeiðum og svo fer spjallið í allar áttir.“
–
Klakinn Stúdíó er mjög vel búið hljóð og myndver og hvetur Þórhallur alla sem eiga sér draum um eigið hlaðvarp að hafa samand. Þórhallur leggur úr höfn með þrjá sterka bakhjarla, Kalda, Storytell og Reykjavík Foto.






