Á meðan þrasað er um innflytjendur á alla kanta slær Bubbi Morthens vopn úr allra höndum og segir: „Mamma mín var innflytjandi. Afi minn í föðurætt líka.“
SNORRI ÁSMUNDSSON (59)
Fjöllistamaðurinn Snorri Ásmundsson er afmælisbarn dagsins (59). Hann hefur markað dýpri spor en margur í íslenskan hversdagleika með sköpun sinni út og suður, upp og niður osfrv. Hann fær óskalagið Crasy með Patsy Cline:
UPPÁHALDSBÍÓMYNDIR PÁFANS Í RÓM
LJÓSAFOSSINN RENNUR NIÐUR HLÍÐAR ESJUNNAR Á LAUGARDAGINN
Hinn árlegi Ljósafoss rennur niður hlíðar Esjunnar næsta laugardag. Það er Ljósið – endurhæfingar – og stuðningsmiðstöð krabbameinsgreindra og aðstandenda þeirra sem stendur fyrir göngunni:
„Við hittumst á bílastæðinu við Esjuna kl.15:30 og leggjum af stað kl.16:00 upp að Steini. Þaðan munum við svo ganga niður með höfuðljósin kveikt og mynda fallegan Ljósafoss í þann mund sem myrkrið skellur á. Á leiðinni niður göngum við í þögn til að minnast þeirra sem við höfum misst í baráttunni við krabbamein og þeirra sem standa í þeirri baráttu núna.
Í tilefni af 20 ára starfsafmæli Ljóssins, verður Ljósafossinn enn glæsilegri en áður! Á svæðinu verður hinn vinsæli Möndluvagn með ilmandi möndlur og heitt kakó til sölu, þar sem 30-40% af verðinu rennur til Ljóssins. Ljósið verður einnig með falleg kerti til sölu, skreytt broti úr ljóði eftir Siggu Soffíu. Kertin kosta 4.500 krónur og allur ágóði rennur til Ljóssins.
Veðurspáin á laugardaginn er fullkomin fyrir fjallgöngu. Þetta er því tilvalið tækifæri til að fá sér ferskt loft, hreyfingu og styðja gott málefni. Taktu fjölskylduna, börnin og vinina með, það eru allir velkomnir.
Þorsteinn Jakobsson fjallagarpur leiðir gönguna eins og undanfarin ár og björgunarsveitin Kjölur verður á staðnum. Síðustu ár hefur Ljósinu borist liðsstyrkur frá öflugum samstarfsaðila í undirbúningi og framkvæmd Ljósafossins en að þessu sinni ætlar Sjóvá að styrkja Ljósið um 2.000 kr. fyrir hvern þann sem hittir okkur við Esjurætur hvort sem þeir leggja á fjallið eður ei.
Þau sem treysta sér ekki upp fjallið eru að sjálfsögðu hjartanlega velkomin að hitta okkur við Esjuna, það eitt að mæta og standa með okkur skiptir máli. Við hvetjum alla gönguhópa og fjallagarpa að reima á sig gönguskóna og hjálpa okkur að láta Ljósið skína.“
HUMARHALAR, FILET MIGNON OG KONÍAK Í LOFTLEIÐAFERÐ TIL NEW YORK NÆSTA VOR
Hafin er kynning á væntanlegri Loftleiðaferð til New York næsta vor á vegum Sögufélags Loftleiða í tilefni af að 80 ár eru liðin frá því Loftleiðir keypti fyrsta Skymaster félagsins, Heklu, í Bandaríkjunum.
Um er að ræða fjögurra daga ferð þar sem sögustaðir Loftleiða í New York verða heimsóttir en þeir eru fjölmargir, skrifstofur, veitingastaðir og hótel.
Bandaríkjaflug Loftleiða vakti heimsathygli og þjónusta um borð var ævintýralegri en farþegar höfðu áður kynnst. Glæsilegur matur, vín og afþreying alla leiðina sem var löng á þessum árum. Því er eðlilegt að spurt sé:
„Verður Loftleiðaþjónusta um borð? Og má reykja.“
„Já. Humarhalar, filet mignon og koníak,“ segir Sigurgeir Orri Sigurgeirsson stofnandi Sögufélag Loftleiða sem gert hefur kvikmynd um Loftleiðaævintýri, skrifað um það glæsilega bók og framleiðir og selur Loftleiðavarning, húfur, töskur ofl.
GRACE KELLY (96)
Fæðingardgur Grace Kelly (1929-1982) kvilmyndastjörnu og síðar furstaynju af Mónakó. Hér er mynd af henni þegar hún heimsótti Hvíta húsið í Washington 1961. John F. Kennedy þáverandi forseti vísar henni veginn en hún getur ekki haft augun af honum – þar er blik.
Þremur árum síðar var Kennedy myrtur í Dallas, 47 ára og 21 ári síðar lést Grace í bilslysi í Mónakó, 52 ára.
EITRAÐ FYRIR ELDRI BORGARA Á ELLIHEIMILI
„Ég hef undanfarin misseri setið nokkra daga í viku á Eirhömrum. Ég kann því vel, starfsfólkið hvert öðru betra, kaffið gott og margt forvitnilegt og skemmtilegt fólk sem ég hitti. Einn ljóður er þó á þessu,“ segir Sigurður G. Tómasson landsþekktur fjölmiðlamaður, sestur í helgan stein:
„Okkur býðst matur á vægu verði. Og þar stendur hnífurinn í kúnni! Ég er svo óheppinn að vera með sykursýki af gerð 1. Við framleiðum ekki insúlín. Svo vill til að ég er mjög vel að mér um mat. Og maturinn sem boðið er upp á á Eirhömrum er aldeilis óhæfur mér. Að minnsta kosti þrisvar í viku eru sætir grautar eða súpur í eftirrétt og algengt er að nota sykur í sósur og mat. Í kaffinu er sætabrauð og kökur. Þetta er engum hollt en mér beinlínis eitrað.“
HELGI MAGNÚS VÆRI NÚ RÍKISLÖGREGLUSTJÓRI HEFÐI HANN EKKI AFÞAKKAÐ AÐ VERÐA VARARÍKISLÖGREGLUSTJÓRI
Brotthvarf Sigríðar Bjarkar ríkislögreglustjóra tekur á sig ýmsar myndir. Hér er ein:
Þegar Helgi Magnús Gunnarsson var flæmdur úr embætti vararíkissaksóknara fyrir skemmstu reyndi nýr dómsmálaráðherra að leysa málið með því að endurvekja embætti vararíkislögreglustjóra, sem hafði verið aflagt lengi, og bjóða Helga Magnúsi. Helgi Magnús afþakkaði pent. Fór heim og verður þar á launum næsta árartuginn.
Hefði Helgi Magnús hins vegar þegið boð dómsmálaráðherra, sem erfði vandamálið frá fyrirrennara sínum sem nú er formaður Sjálfstæðisflokksins, væri Helgi Magnús nú orðinn ríkislögreglustjóri næstu fjögur árin því varamenn taka alltaf við. Og gæti sótt um aftur að þeim tíma liðnum þegar embættið verður auglýst skv. lögum. Jafnvel fengið það – yrði hann til friðs í bergmálshellum góða fólksins.
STUTTPUTTAFÉLAGIÐ LILLEPUT FUNDAR
Fundur í stuttputtafélaginu Lilleputt á Ölstofunni fyrir skemmstu. Fyrsta mál á dagskrá: Samningar við hanskaframleiðendur um sérpantanir fyrir veturinn.
GRETA SALÓME (39)
Tónlistarstjarnan Greta Salóme er afmælisbarn dagsins (39). Hún tók þátt í Eurovision fyrir Íslands hönd 2016 með stæl og áður óséðum tilþrifum.

