Hlollywoodstjörnur streyma til Rómar um helgina til fundar við Leó páfa í Vatikaninu. Tilefnið er hefðbundin hátíð Páfagarðs – World of Cinema á laugardaginn.
Meðal þeirra sem tilkynnt hafa þátttöku eru Cate Blanchett, Adam Scott, Chris Pine, Viggo Mortensen, Alison Brie og Dave Franco og svo leikstjórarnir Judd Apatow, Spike Lee, George Miller og Gus Van Sant.
Í tilefni af þessu hefur Variety birt lista yfir uppáhalds kvikmyndir páfa en hann er sem kunnugt er bandarískur og því alinn upp við bíóferðir. Myndirnar eru þessar:
“It’s a Wonderful Life” (1946) með Jimmy Stewart, “The Sound of Music” (1965) með Julie Andrews, “Ordinary People” (1980) með Donald Sutherland og Mary Tyler Moore og “Life Is Beautiful” (1997) eftir og með Roberto Benigni.