HomeSagt erLJÓSAFOSSINN RENNUR NIÐUR HLÍÐAR ESJUNNAR Á LAUGARDAGINN

LJÓSAFOSSINN RENNUR NIÐUR HLÍÐAR ESJUNNAR Á LAUGARDAGINN

Hinn árlegi Ljósafoss rennur niður hlíðar Esjunnar næsta laugardag. Það er Ljósið – endurhæfingar – og stuðningsmiðstöð krabbameinsgreindra og aðstandenda þeirra sem stendur fyrir göngunni:

„Við hittumst á bílastæðinu við Esjuna kl.15:30 og leggjum af stað kl.16:00 upp að Steini. Þaðan munum við svo ganga niður með höfuðljósin kveikt og mynda fallegan Ljósafoss í þann mund sem myrkrið skellur á. Á leiðinni niður göngum við í þögn til að minnast þeirra sem við höfum misst í baráttunni við krabbamein og þeirra sem standa í þeirri baráttu núna.

Í tilefni af 20 ára starfsafmæli Ljóssins, verður Ljósafossinn enn glæsilegri en áður! Á svæðinu verður hinn vinsæli Möndluvagn með ilmandi möndlur og heitt kakó til sölu, þar sem 30-40% af verðinu rennur til Ljóssins. Ljósið verður einnig með falleg kerti til sölu, skreytt broti úr ljóði eftir Siggu Soffíu. Kertin kosta 4.500 krónur og allur ágóði rennur til Ljóssins.

Veðurspáin á laugardaginn er fullkomin fyrir fjallgöngu. Þetta er því tilvalið tækifæri til að fá sér ferskt loft, hreyfingu og styðja gott málefni. Taktu fjölskylduna, börnin og vinina með, það eru allir velkomnir.

Þorsteinn Jakobsson fjallagarpur leiðir gönguna eins og undanfarin ár og björgunarsveitin Kjölur verður á staðnum. Síðustu ár hefur Ljósinu borist liðsstyrkur frá öflugum samstarfsaðila í undirbúningi og framkvæmd Ljósafossins en að þessu sinni ætlar Sjóvá að styrkja Ljósið um 2.000 kr. fyrir hvern þann sem hittir okkur við Esjurætur hvort sem þeir leggja á fjallið eður ei. 

Þau sem treysta sér ekki upp fjallið eru að sjálfsögðu hjartanlega velkomin að hitta okkur við Esjuna, það eitt að mæta og standa með okkur skiptir máli. Við hvetjum alla gönguhópa og fjallagarpa að reima á sig gönguskóna og hjálpa okkur að láta Ljósið skína.“

TENGDAR FRÉTTIR

FRIÐARSÚLAN Í VIÐEY TENDRUÐ

Kveikt verður á Friðarsúlu Yoko Ono í Viðey í tuttugasta sinn, föstudaginn 9. október klukkan 20.00. Frítt er í Viðeyjarferjuna Í boði Yoko Ono...

FEÐGAR HOFÐU Á HARRY POTTER Í SJÓNVARPINU – SONURINN VISSI EKKI AÐ PABBI HANS HEFÐI LEIKIÐ HARRY POTTER

Daniel Ratcliffe, sem lék Harry Potter í í samnefndum kvikmyndum, horfir á Harry Potter með syni sínum sem hefur ekki hugmynd um að hann...

BERGÞÓRA GLÍMIR VIÐ SEÐLA-GEIRA

Hagbarður í Hokri sendir póst: - Bergþóra Baldursdóttir hagfræðingur Íslandsbanka er ekki við sama heygarðshornið og stórbóndinn Seðla-Geiri í Svörtuloftum (sjá hér.) Bergþóra er samt greinilega...

JURTAKOKTEILAR Í GRASAGARÐINUM

Slow Food á Íslandi býður ykkur í BragðaGarð, skemmtilega og fræðandi Slow Food hátíð sem haldin verður í Grasagarði Reykjavíkur föstudaginn 9. október kl....

ÚKRAÍNSKAR HELGIMYNDIR TIL ÍSLANDS – Í SKJÓLI HÉR ÞAR TIL STRÍÐINU LÝKUR

Listasafn Íslands opnar 17. október sýninguna Þar sem ljósið lifir: Úkraínskar helgimyndir í aldanna rás, þar sem sýndar verða 32 fágætar helgimyndir úr safneign Listasafns...

RÁÐHERRANN RÆKTAR EPLI – AÐSTOÐARKONAN GÚRKUR

Logi Einarsson menningarmálaráðherra ræktaði epli í sumar og uppskeran komin í hús - þrjú epli. Ráðherrann hefur ákveðið að börnin hans tvö fái sitthvort...

FRIÐARVIKA Í REYKJAVÍK

Á þessu ári eru liðin 40 ár frá hinum sögulega leiðtogafundi í Reykjavík árið 1986, þar sem Ronald Reagan, forseti Bandaríkjanna, og Míkhaíl Gorbachev,...

SKORA Á SÆLAND AÐ VÍGGIRÐA HLJÓMSKÁLAGARÐ

Úr ársfjórðungsritinu Hrepparíg: - Það þarf girða fyrir að börn og táningar séu að ráfa inn í Hljómskálagarð. Skora á  Sæland að setja rammgerða víggirðingu og...

VOPNABRÆÐUR AKA Á KJÖRSTAÐ

Gamla skopmyndin sýnir Kjartan Gunnarsson, fyrrum framkvæmdastjóra Sjalfstæðisflokksins, og vopnabróður hans, Hannes Hólmstein, akandi á kjörstað í Stúdentaráðskosningum í Háskólanum þegar þeir stunduðu þar...

ÞJÓFÓTTUR KÖTTUR Í VESTURBÆNUM

"Ég vil afsaka það innilega ef að hann Dreki minn hefur stolið af þér sokk sem að hann finnur í þvottahúsum í hverfinu og...

KYNJARUGL Á MEISTARAVÖLLUM

Það var glæsileg umgjörðin á Meistaravöllum þegar KR-stelpurnar tóku á móti HK-stelpunum í úrslitaleik um Íslandsmeistaratitil B liða. Leikurinn fór 2-2 og tapaðist annars vegar...

DORRIT ELSKAR ICELANDAIR

Þjóðargersemin Dorrir Moussaieff flaug með Icelandair og var ánægð með. Fékk að heilsa upp á flugmennina í flugstjórnarklefanum og þakkaði fyrir sig með þessu: "Thank...

Sagt er...

"Hversu lengi á að sjóða egg? Það getur munað ótrúlega miklu á einni mínútu." Albert eldar

Lag dagsins

Bandaríski leikarinn, handritshöfundurinn og kvikmyndaframleiðandinn Matt Damon er afmælisbarn dagsins (56). Sló fyrst í gegn í kvikmyndinni Good Will Hunting þar sem hann var...