Home Blog Page 47

BORGARSTJÓRI FELLIR OSLÓARTRÉ Í HEIÐMÖRK OG GEFUR ANNAÐ TIL FÆREYJA

0

Það var fallegt um að litast í Heiðmörk í hádeginu í dag þegar Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri felldi Oslóartréð sem prýðir Austurvöll yfir hátíðarnar.

Þótt Oslóartréð komi nú úr Heiðmörk hefur það engu breytt um vináttuna og í stað jólatrés gefa borgaryfirvöld í Osló grunnskólum í Reykjavík bækur.

Að venju gefur Reykjavíkurborg Færeyingum tré, sem Eimskip sér um að flytja til Færeyja. Kveikt verður á því jólatré í Þórshöfn þann 29. nóvember.

BRÍET Í NASHVILLE

0
Þeir kunna að taka upp videó í Nashville.
Þeir kunna að taka upp videó í Nashville.

Tónlistarstjarnan Bríet fór til Nashville og kom heim kántrí. Hún er að leggja heiminn að fótum sér.

PETULA CLARK (93)

0

Hún var samferðakona Bítlanna og fleiri breskra hljómsveita sem sprungu út á sjöunda áratugnum og lögðu ekki aðeins Breska heimsveldið að fótum sér heldur einnig vinsældalista í Bandaríkjunum þannig að innfæddir urðu að víkja. Petula var sæta stelpan í hópnum og er 93 ára í dag. Eftir hana liggja 68 milljónir seldra hljómplatna þar sem „Down Town“ trónir á toppnum:

JÓI FEL KOKKAR FYRIR KÆRUSTUNA HJÁ HINU OPINBERA

0

Stjörnubakarinn Jói Fel hefur verið að kokka á Litla Hrauni sem kunnugt er af fréttum. Urgur er í nokkrum matreiðslumeisturum sem höfðu áhuga á starfinu þegar það var auglýst af hinu opinbera. Ekki vegna þess að Jói Fel er bakari en ekki matreiðslumeistari heldur hitt að hann er kærasti Kristínar Evu Sveinsdóttur förstöðumanns á Litla Hrauni sem auglýsti starfið.

EIGINKONU SNORRA MÁSSONAR MISBOÐIÐ

0
„Í morgun birtist flennistór mynd af tveggja ára gömlum syni mínum á Vísi.is undir fyrirsögninni: „Byrjað að daðra við rasíska samsæriskenningu.“ segir Nadine Guðrún Yaghi eiginkona Snorra Mássonar varaformanns Miðflokksins og er misboðið:
„Ég er ýmsu vön sem eiginkona stjórnmálamanns og þekki vel hve óvægin umræðan getur orðið og hef almennt litið svo á að það sé bara hluti af starfinu.
En ég er líka móðir og er ekki undir nokkrum kringumstæðum tilbúin að sitja undir því að mynd af syni mínum sé teflt fram sem hluta af mjög hvassri pólitískri gagnrýni. Honum virðist teflt fram sem smellibeitu og att út á foraðið sem aðila að einhverju sem hann hvorki skilur né átti nokkurn þátt í að skapa.
Almennt hafa mér fundist það verðmæt lífsgæði í okkar litla samfélagi að opinberar persónur þurfi þrátt fyrir allt ekki að fela börn sín frá opnum viðburðum eða samfélagsmiðlum til að tryggja að myndir af þeim verði ekki notaðar gegn foreldrunum í pólitískum tilgangi. Það eru ömurlegar fréttir ef það er liðin tíð.
Ég hef óskað eftir því við Vísi að önnur mynd fylgi fréttinni. Þau hafa svarað því neitandi með þeim rökum að faðirinn hafi sjálfur birt myndina. Það var auðvitað í allt öðru samhengi.
Þarna held ég að minn gamli góði vinnustaður hafi villst af leið. Að minnsta kosti man ég ekki sjálf til þess að börn á leikskólaaldri hafi hingað til þurft að þola myndbirtingar undir hápólitískum fréttum um foreldra þeirra og þannig orðið hluti af fréttinni.“

KÓNGURINN MEÐ GRÆNU FINGURNA Á AFMÆLI Í DAG

0

Karl Bretakonungur er 77 ára í dag. Ætla mætti að erfitt væri að finna afmælisgjöf fyrir mann sem metinn er á 2 milljarða punda og gæti þess vegna keypti hvað sem er. En það vefst ekki fyrir vinum og ættingjum. Hann óskar sér alltaf þess sama: Eitthvað fyrir Highgrover garðinn sinn. Plöntur, tré, bekki eða jafnvel gangstéttarhellur.

„Garðyrkja er ástríða hans. Hann er besti konununglegi garðyrkjumaður sögunnar,“ segir aðstoðarmaður hans til margra ára. „Græni kóngurinn.“

HELGI PÉTURSSON (1949-2025)

0

Blessuð sé minning Helga Péturssonar, þess góða manns sem öllum vildi vel.

BUBBI OG NÝBÚARNIR

0

Á meðan þrasað er um innflytjendur á alla kanta slær Bubbi Morthens vopn úr allra höndum og segir: „Mamma mín var innflytjandi. Afi minn í föðurætt líka.“

SNORRI ÁSMUNDSSON (59)

0

Fjöllistamaðurinn Snorri Ásmundsson er afmælisbarn dagsins (59). Hann hefur markað dýpri spor en margur í íslenskan hversdagleika með sköpun sinni út og suður, upp og niður osfrv. Hann fær óskalagið Crasy með Patsy Cline:

UPPÁHALDSBÍÓMYNDIR PÁFANS Í RÓM

0
Hlollywoodstjörnur streyma til Rómar um helgina til fundar við Leó páfa í Vatikaninu. Tilefnið er hefðbundin hátíð Páfagarðs – World of Cinema á laugardaginn.
Meðal þeirra sem tilkynnt hafa þátttöku eru Cate Blanchett, Adam Scott, Chris Pine, Viggo Mortensen, Alison Brie og Dave Franco og svo leikstjórarnir Judd Apatow, Spike Lee, George Miller og Gus Van Sant.
Í tilefni af þessu hefur Variety birt lista yfir uppáhalds kvikmyndir páfa en hann er sem kunnugt er bandarískur og því alinn upp við bíóferðir. Myndirnar eru þessar:
“It’s a Wonderful Life” (1946) með Jimmy Stewart, “The Sound of Music” (1965) með Julie Andrews, “Ordinary People” (1980) með Donald Sutherland og Mary Tyler Moore og “Life Is Beautiful” (1997) eftir og með Roberto Benigni.