Stjörnubakarinn Jói Fel hefur verið að kokka á Litla Hrauni sem kunnugt er af fréttum. Urgur er í nokkrum matreiðslumeisturum sem höfðu áhuga á starfinu þegar það var auglýst af hinu opinbera. Ekki vegna þess að Jói Fel er bakari en ekki matreiðslumeistari heldur hitt að hann er kærasti Kristínar Evu Sveinsdóttur förstöðumanns á Litla Hrauni sem auglýsti starfið.






