HomeGreinarEIGINKONU SNORRA MÁSSONAR MISBOÐIÐ

EIGINKONU SNORRA MÁSSONAR MISBOÐIÐ

„Í morgun birtist flennistór mynd af tveggja ára gömlum syni mínum á Vísi.is undir fyrirsögninni: „Byrjað að daðra við rasíska samsæriskenningu.“ segir Nadine Guðrún Yaghi eiginkona Snorra Mássonar varaformanns Miðflokksins og er misboðið:
„Ég er ýmsu vön sem eiginkona stjórnmálamanns og þekki vel hve óvægin umræðan getur orðið og hef almennt litið svo á að það sé bara hluti af starfinu.
En ég er líka móðir og er ekki undir nokkrum kringumstæðum tilbúin að sitja undir því að mynd af syni mínum sé teflt fram sem hluta af mjög hvassri pólitískri gagnrýni. Honum virðist teflt fram sem smellibeitu og att út á foraðið sem aðila að einhverju sem hann hvorki skilur né átti nokkurn þátt í að skapa.
Almennt hafa mér fundist það verðmæt lífsgæði í okkar litla samfélagi að opinberar persónur þurfi þrátt fyrir allt ekki að fela börn sín frá opnum viðburðum eða samfélagsmiðlum til að tryggja að myndir af þeim verði ekki notaðar gegn foreldrunum í pólitískum tilgangi. Það eru ömurlegar fréttir ef það er liðin tíð.
Ég hef óskað eftir því við Vísi að önnur mynd fylgi fréttinni. Þau hafa svarað því neitandi með þeim rökum að faðirinn hafi sjálfur birt myndina. Það var auðvitað í allt öðru samhengi.
Þarna held ég að minn gamli góði vinnustaður hafi villst af leið. Að minnsta kosti man ég ekki sjálf til þess að börn á leikskólaaldri hafi hingað til þurft að þola myndbirtingar undir hápólitískum fréttum um foreldra þeirra og þannig orðið hluti af fréttinni.“
TENGDAR FRÉTTIR

PISSUSKÁLAR Í RIGA

Kristinn Sigurjónsson verkfræðingur átti leið um flugvöllinn í Riga í Litháen og brá í brún þegar hann þurfti að létta af sér á vellinum: "Þessar...

LAMBALÆRI FRÁ KAUPFÉLAGI SKAGFIRÐINGA Á 3.000 KRÓNUR Á COSTA BLANCA

Íslendingar á Costa Blanca svæðinu á Spáni ganga nú að skagfirskum lambalærum í stórmörkuðum á aðeins 3.000 krónur íslenskar. Sama læri kostar ca. 12.000...

ÁSGRÍMUR SLEGINN Á 8,7 MILLJÓNIR Á UPPBOÐI HJÁ FOLD

Olíumálverk eftir Ásgrím Jónsson var selt á 8,7 milljónir á uppboði hjá Gallerí Fold í gærkvöldi. Verðmat fyrir uppboðið var hærra - 10-12 milljónir. Myndin...

BORGARSTJÓRI HLÝDDI AGLI HELGA – SUMARBLÓMUNUM HLÍFT Á UMFERÐAREYJUM

Tilmæli Egils Helgasonar til borgarstjóra um að hætta að slá sumarblómin fögru á umferðareyjum í höfuðborginni virkuðu. Á gatnamótum Háaleitisbrautar og Stóragerðis nú síðdegis mátti...

FYRSTA KONAN SKIPUÐ REKTOR MH

Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, hefur skipað Helgu Jóhannsdóttur í embætti rektors Menntaskólans við Hamrahlíð til fimm ára frá 1. ágúst næstkomandi. Helga er...

ORÐABÓK UM ÖLVUNARÁSTAND

Þessi listi með íslenskum orðum yfir ölvunarástand birtist í blaðinu Stormi 1933. Tólf árum síðar birtist þetta: Halldór Laxness skrifar grein - "Fylliraftarnir" þar...

GERVIGREINDIN LITAR GAMLAR LJÓSMYNDIR

Ingvar Víkingsson, grafískur hönnuðu frá Stykkishólmi, spurði gervigreindina hvort hún gæti litað gamla ljósmynd af sér frá 1977. Gaf upp litina á svart/hvítu myndinni;...

GRINDAVÍK GALOPIN

Lífið í Grindavík er að taka á sig fyrri mynd þó hægt fari. Flest fyrirtæki í gangi, fólk að snúa heim og auglýsingaherferð hafin...

SOKKUR DAGSINS

Þetta er sokkur dagsins. Liggur þétt að fæti, kuðlast ekki og andar á afláts. Virkar einnig sem inniskór. Fæst á Netinu.

EGILL SENDIR BORGARSTJÓRN TILMÆLI

Egill Helgason fjölmiðlastjarna sendir nýrri borgarstjórn tilmæli í þágu náttúrunnar og sparnaðar: "Hætta að slá gras sem er nýsprottið - með ærnum tilkostnaði. Ekki taka...

BILAÐ HEYRNATÆKI Á COSTA BRAVA

"Veit einhver hvar er hægt að láta að laga heyrnatæki?" spyr Rut Másdóttir íbúi á Costa Brava á Spáni á samfélagsveF Íslendinga sem þar...

GERVIGREINDIN ÓGNAR FASTEIGNASÖLUM

Reykvískur íbúðaeigandi í 101 var að íhuga að selja og flytja sig um set og datt í hug að spyrja gervigreindina hvernig staðan væri...

Sagt er...

Vesturbæingur ætlaði að búa til omilettu fyrir sig og sína, teygði sig í nýjan eggjabakka í ísskápnum og tók þar fjögur egg sem öll...

Lag dagsins

24. maí 1961 tilkynnti John F. Kennedy, þáverandi forseti Bandríkjanna, að stefnt yrði að því að senda menn til tunglsins fyrir lok áratugsins. Það...