Karl Bretakonungur er 77 ára í dag. Ætla mætti að erfitt væri að finna afmælisgjöf fyrir mann sem metinn er á 2 milljarða punda og gæti þess vegna keypti hvað sem er. En það vefst ekki fyrir vinum og ættingjum. Hann óskar sér alltaf þess sama: Eitthvað fyrir Highgrover garðinn sinn. Plöntur, tré, bekki eða jafnvel gangstéttarhellur.
„Garðyrkja er ástríða hans. Hann er besti konununglegi garðyrkjumaður sögunnar,“ segir aðstoðarmaður hans til margra ára. „Græni kóngurinn.“







