Það var fallegt um að litast í Heiðmörk í hádeginu í dag þegar Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri felldi Oslóartréð sem prýðir Austurvöll yfir hátíðarnar.
Þótt Oslóartréð komi nú úr Heiðmörk hefur það engu breytt um vináttuna og í stað jólatrés gefa borgaryfirvöld í Osló grunnskólum í Reykjavík bækur.
Að venju gefur Reykjavíkurborg Færeyingum tré, sem Eimskip sér um að flytja til Færeyja. Kveikt verður á því jólatré í Þórshöfn þann 29. nóvember.







