„Ég hef undanfarin misseri setið nokkra daga í viku á Eirhömrum. Ég kann því vel, starfsfólkið hvert öðru betra, kaffið gott og margt forvitnilegt og skemmtilegt fólk sem ég hitti. Einn ljóður er þó á þessu,“ segir Sigurður G. Tómasson landsþekktur fjölmiðlamaður, sestur í helgan stein:
„Okkur býðst matur á vægu verði. Og þar stendur hnífurinn í kúnni! Ég er svo óheppinn að vera með sykursýki af gerð 1. Við framleiðum ekki insúlín. Svo vill til að ég er mjög vel að mér um mat. Og maturinn sem boðið er upp á á Eirhömrum er aldeilis óhæfur mér. Að minnsta kosti þrisvar í viku eru sætir grautar eða súpur í eftirrétt og algengt er að nota sykur í sósur og mat. Í kaffinu er sætabrauð og kökur. Þetta er engum hollt en mér beinlínis eitrað.“







