„Sjómannadagur er dagur þeirra og áralöng hefð hjá fiskveiðiþjóð. Í mínum huga verður þessi dagur æ hjárænulegri,“ segir Lýður Árnason landsþekktur læknir, tónlistarmaður og samfélagsrýnir og lætur svo móðan mása:
–
„Sjómönnum hefur fækkað og þeir eru hlunnfarnir. Möguleikar þeirra til sjálfstæðrar sjósóknar eru engir. Sjómenn geta ekki haft sjálfstæðar skoðanir, þá eru þeir reknir.
Fiskveiðiþjóðin er hnípin. Hún á fiskimiðin samkvæmt lögum en þegar veiðiréttinum er úthlutað á hún yfir höfði sér málsóknir ef hún úthlutar ekki rétt samkvæmt skoðunum þeirra sem telja veiðiréttinn eiga heima í eigin erfðaskrám.
Þessi dagur sjómanna ætti því ekki að markast af hátíðahöldum heldur sólarhringsþögn til áminningar um það sem farið hefur úrskeiðis. Síðan á að ganga í málin.“





