„Koma þarf í veg fyrir árásir á réttindi og takmarkanir á frelsi á heimsmeistaramótinu í fótbolta sem hefst um miðjan júní,“ segir í hvatningu frá Amnesty International sem hrundið hefur af stað undirskriftarsöfnun af þessu tilefni:
„Hætta er á að fögnuðurinn breytist í martröð. Nú þegar styttist í mótið hafa yfirvöld í löndunum sem halda mótið (Bandaríkjunum, Mexíkó og Kanada) herjað á innflytjendur, sett takmarkanir á mótmæli og ýtt jaðarhópum til hliðar.
Fótboltaaðdáendur og nærsamfélög þar sem mótið er haldið verða að fá fullt frelsi til að fagna. Alþjóðaknattspyrnusambandið FIFA hefur lofað því að mótið verði öruggt, inngildandi og að fólk njóti réttinda sinna en hætta er á að svo verði ekki.“




