„Ég er yfirleitt feiminn við að vera á persónulegu nótunum en einstaka sinnum koma dagar sem þróast þannig að það verður freistandi að segja frá því,“ segir Sigmundur Davíð formaður Miðflokksins og hér er sagan:
–
„Eftir allan hamaganginn vegna sveitarstjórnarkosninga og ESB umsóknar og eftir síðustu skyldur sem fylgdu þeirri orrahríð, í bili, hélt ég heim á leið.
Heima beið hvolpur sem ég gæti alveg vanist (þrátt fyrir smávægilegar efasemdir áður en hann mætti).
Svo komst ég að því að það væri búið að kaupa lambalund og kartöflur í kvöldmat.
Dóttirin mátti ráða sjónvarpsefninu og lagði til Hobbitann sem hljómaði vel, en myndin var ekki aðgengileg.
Þá sagði hún: „Ég var að byrja að horfa á þætti sem heita The Sopranos. Viltu horfa á það? Við getum byrjað á byrjuninni.”
Já, takk.“




