Laugardaginn 30. maí verður Listahátíð í Reykjavík sett í 35. sinn.
Opnunarhátíðin hefst í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsi, þar sem boðið verður upp á brot úr nokkrum viðburðum hátíðarinnar, ávörp og léttar veitingar. Samhliða verður yfirlitssýning á verkum Karin Sander opnuð. Þar á eftir leiða Skólahljómsveitir Reykjavíkur borgarbúa að Hörputorgi þar sem þær sameinast í eina risa sveit, með hátt í 600 ungmennum, og frumflytja tónverkið Loftvægi eftir Samúel Jón Samúelsson. Í kjölfarið verður loftfimleikaverkið The Air Between Us sýnt á Hörputorgi.
Sinfóníuhljómsveit Íslands flytur eitt stærsta sinfóníska verk sögunnar, áttundu sinfóníu Mahlers, á tónleikum í Eldborg kl 17 og á sama tíma kynnir Fischersund ilmheim hátíðarinnar í gróðurhúsinu á Lækjartorgi. Sýningar James Merry og Bjarkar Guðmundsdóttur opna í Listasafni Íslands og svo er svo er tilvalið að enda daginn í opnunarpartýi Klúbbs Listahátíðar í Iðnó á danssýningunni Move with Pride.



