Þann 29 maí 2008 klukkan 15:45 riðu tveir suðurlandsskjálftar samtímis yfir, 6,3 stig á Richter. Talið er að annar skjálftinn hafi hrint hinum af stað.
Skjálftinn fannst á höfuðborgarsvæðinu og alla leið til Ísafjarðar. Almannavarnir lýsti yfir hæsta viðbúnaðarstigi í Hveragerði, Selfossi og nágrenni.
Ekkert mannfall varð en nokkrar sauðkindur urðu undir byggingum og fórust og nokkrum þurfti að lóga.





