
Á forsíðu Morgunblaðsins i gær er birt ljósmynd af heilum reit ibúðahúsa sem bíða þess að heimild fáist hjá bæjaryfirvöldum i Kópavogi, til að rífa. Hilmar Þór Björnsson arktekt hefur þetta um málið að segja:
Þessi hús voru byggð á árunum milli 1950 og 1960. Það rétt að minna á að Kópavogskaupstaður var stofnaður 11. mai árið 1955. Fyrir 71 ári. Húsin sem þarna eiga nú að víkja eru þvi jafngömul kaupstaðnum.
Sagt er að peningar haldi menningunni gangandi. Það má eins halda þvi fram að menningunnu sé fórnað til þess að halda peningunum rúllandi.


