Joyas de la Raspa hefur hlotið fjölda viðurkenninga á Spáni, meðal annars Landsverðlaun í handverki árið 2008 fyrir Abyssal-safnið, þar sem sjóslípað gler úr fjörum var notað sem lykilefni. Eftir fráfall Miguel Sánchez-Cantón árið 2020 hefur Virginia R. Lorenzo áfram leitt starfsemina og þróað myndheim sem sækir innblástur í Atlantshafið.
Sýningin markar jafnframt endurkomu verkstæðisins til Reykjavíkur en árið 2000 sýndi Joyas de la Raspa hjá Ófeigi sem hluti af Air-ring-sýningunni undir listrænni stjórn Matti Mattsson. Nú, rúmum tveimur áratugum síðar, snýr Virginia R. Lorenzo aftur með ný verk hjá Hildi Bolladóttur og Bolla Ófeigssyni.




