„Við fögnum því að nú eru 10 ár liðin frá því að Asparhúsið var reist í Vallanesi. Með þessu framtaki reis fyrsta húsið þar sem íslenskt timbur var notað í burðarvirki í hús,“ segja lífrænu ræktunarhjónin í Vallanesi á Fljótsdalshéraði, Eymundur Magnússon og Eygló Björk Ólafsdóttir:
„En þar að auki eru gólf, innréttingar, húsgögn og klæðningar að innan sem utan úr heimaræktuðu lerki og ösp. Líkt og tíðkast í lífrænni ræktun var viðurinn meðhöndlaður eingöngu með náttúrulegum efnum.“







