„Hildur tengdadóttir mín er bæði hlý og umhyggjusöm,“ segir Kristín Þorsteinsdóttir fyrrum ritstjóri Fréttablaðsins í aðdraganda kosninga:
–
„Fáum hef ég kynnst með viðlíkt jafnaðargeð. Ég held ég hafi aldrei heyrt hana hækka róminn, hvorki við fjörkálfana fjóra, barnabörnin mín, né aðra. Ég hef stundum sagt, að ef eitt barnanna sveiflaði sér í ljósakrónunni, myndi hún ekki haggast heldur segja yfirveguðum rómi: Kata mín, komdu nú niður áður en þú meiðir þig!
Nú þarf að taka til í borginni. Ég treysti engum betur til þess. Hildur er leiftrandi gáfuð, með kaldan haus en hlýtt hjarta. Reykvíkingar gætu ekki orðið heppnari með borgarstjóra.







