„Örvæntingin er ótrúlegur mannasættir,“ segir Hildur Björnsdóttir oddviti sjálfstæðismanna í borgarstjórn. Ástæðan er þessi:
–
„Það hafa greinilega orðið sögulegar sættir í Samfylkingunni en Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra hefur nú lagst á sveif með aukaleikaranum, Degi B. Eggertssyni, við að dreifa ósannindum um stefnu Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík.
Mér er það bæði ljúft og skylt að svara dylgjum forsætisráðherra: Það er hvorki stefna Sjálfstæðisflokksins, né mín, að selja Orkuveituna. Það hefur legið skýrt fyrir í okkar málefnaskrá frá upphafi. Næsta mál.“


