Mohammed Alkurd innflytjandi frá Gaza bíður eftir brottvísun frá Íslandi, má ekki vinna á meðan en svo barst honum tilkynning frá Þjóðskrá og Landskjörstjórn að hann mætti kjósa í kosningunum eftir viku:
–
„Það virðist sem rödd mín sé meira velkomin en ég sjálfur. Ég hef rétt til að taka þátt í framtíð landsins, en ekki rétt til að vera hluti af henni. Ég get kosið í kosningunu en ég get ekki verið áfram til að sjá niðurstöðuna. Lýðræði er fallegt nema þegar það stoppar við rétt manns til að fá að vera áfram,“ segir hann og heldur áfram:
–
„Stundum líður mér eins og fangi utan fangelsis. Þess vegna er það eina sem ég get gert núna að bíða í von um að lögfræðingurinn minn og nokkrir vinir geti fundið lausn svo ég verði ekki sendur úr landi. Ég hef ekki fengið neina aðstoð frá ríkinu síðan ég neyddist til að hætta að vinna í júlí á síðasta ári vegna strangra laga og ég er að ganga í gegnum erfiðar aðstæður vegna þess. Ég vona að mál mitt verði endurskoðað.“




