Margrét Jónsdóttir listmálari á þetta verk sem reyndar var aðeins ætlað sem færsla á samfélagsmiðli. Og segir ekki orð um það meir. Enda segir þetta sig sjálft.
–

Listmálarinn Margrét Jónsdóttir er fædd í Reykjavík og starfar að list sinni í Frakklandi og Íslandi. Hún hefur unnið sem myndlistarmaður í hálfa öld og fyrsta sýning hennar var í London.
Hún hefur haldið yfir 50 einkasýningar og tekið þátt í fjölda samsýninga hér á landi og erlendis. Margrét var einn af stofnendum Gallery Suðurgötu 7 sem var mikilvæg miðstöð í þróun framlínumyndlistar á Íslandi. Hún er í ritinu „Íslensk listasaga“, sem er fimm binda verk og spannar tímabilið frá síðari hluta 19. aldar til upphafs 21. aldar.
Verk eftir hana eru í eigu helstu listasafna landsins.



