Reykjavíkurborg óskar eftir ábendingum um hús og lóðir sem verðskulda fegrunarviðurkenningar Reykjavíkurborgar í ár. Veittar eru viðurkenningar fyrir vandaðar endurbætur á eldri húsum og fyrir lóðir þjónustu-, stofnana- og fjölbýlishúsa sem þykja til fyrirmyndar.
Fegrunarnefnd Reykjavíkurborgar var skipuð í maí árið 1968. Eftirtalin félagssamtök áttu fulltrúa í nefndinni: Arkitektafélag Íslands, Húsmæðrafélag Reykjavíkur, Garðyrkjufélag Íslands, Húseigendafélag Reykjavíkur auk sérfræðinga sem skipaðir voru af borginni.
Á afmæli Reykjavíkurborgar þann 18. ágúst árið 1968 valdi Fegrunarnefndin í fyrsta sinn fegurstu götu Reykjavíkurborgar og varð Safamýri fyrir valinu. Margar fleiri götur í Reykjavík þóttu til sóma fyrir útlit borgarinnar til dæmis Einimelur, Hvassaleiti, Kleifarvegur og Sporðagrunnur.





