Í dag, 12. maí, er alþjóðlegur dagur hjúkrunarfræðinga. Þá er vakin sérstök athygli á því ómetanlega starfi sem hjúkrunarfræðingar vinna á hverjum degi við að bjarga mannslífum, bæta lífsgæði og styðja fólk á erfiðum stundum. Á Landspítala starfa hátt í 2.000 hjúkrunarfræðingar sem sinna fjölbreyttum og krefjandi verkefnum allan sólarhringinn, alla daga ársins.
Þema dagsins í ár er „Okkar hjúkrunarfræðingar. Okkar framtíð. Valdefldir hjúkrunarfræðingar bjarga mannslífum“. Því er ætlað að undirstrika mikilvægi þess að styrkja hjúkrunarfræðinga og veita þeim tækifæri til að nýta þekkingu sína og hæfni til fulls. Þannig sé lagður grunnur að öruggri og öflugri heilbrigðisþjónustu.




