Aðstöðumál Glímufélagsins Ármanns og Ungmennafélagsins Fjölnis verða tekin til endurskoðunar og hefur borgarráð samþykkt tillögur starfshópa um bætta aðstöðu félaganna til skamms tíma. Þá var umboð starfshópa endurnýjað til að rýna málefni þeirra til framtíðar.
Glímufélagið Ármann var stofnað árið 1888 og er í dag hverfisfélag í Laugardal. Áætlaður kostnaður af tillögunum vegna Ármanns er um 36,5 milljónir króna á ári auk einnar milljónar króna vegna minniháttar framkvæmda.
Ungmennafélagið Fjölnir, sem stofnað var 1988 og er í dag hverfisfélag í Grafarvogi. Áætlaður kostnaður af tillögunum vegna Fjölnis er um 17-21 milljón króna á ári.




