
Þann 7. maí opnar einkasýning hönnuðarins Logi Pedro undir heitinu Heimur í Ásmundarsal á Skólavörðuholti. Sýningin myndar stórskala innsetningu þar sem yfir tuttugu hlutir; húsgögn, borðbúnaður, textíll, lýsing og hljóð eru hannaðir og framleiddir frá grunni og mynda eitt heildstætt verk, heimili.
–
Sýningin er innblásin af hefð Total Design, þar sem hönnuðurinn mótar ekki aðeins einstaka hluti heldur allt umhverfið í einu samhengi. Með því verður rýmið sjálft að verki, ekki innanhússhönnun í hefðbundnum skilningi heldur heimur sem stendur á eigin forsendum.
–
Logi Pedro hefur alist upp á milli menningarheima og tekst í verkum sínum á við spurningar um sjálfsmynd, tilheyrslu og form. Heimur er fyrsta einkasýning hans og markar tímamót í ferli þar sem hann sameinar hönnun, efnisfræði og menningarlega rannsókn í eina heildstæða sýn.
–
Sýningin er unnin í samstarfi við fjölda framleiðenda og hönnuða. Smíði er í höndum Fjöl Works, glerframleiðsla hjá Reykjavík Glass og leirker hjá Studio Viktor Breki.
Styrktaraðilar eru Polestar, 66°Norður, Baunir & ber og Hönnunarsjóður.



