Til stendur að fjölga hólmunum í Reykjavíkurtjörn sem lið í aðgerðaráætlun sem ber heitið Náttúrulega Reykjavík og borgarráð hefur samþykkt.
Með fjölgun hólmanna í Tjörninni á að styrkja fuglalíf þar. Þá fer friðlýsingaferli í gang í Skerjafirði, fjölga á trjám í borgarlandinu og börnum í grunnskólum verður tryggð kennsla úti í náttúrunni – svo fátt eitt sé nefnt.
Áætlunin byggir á gildandi stefnu Reykjavíkur um líffræðilega fjölbreytni frá árinu 2016 en Reykjavík var fyrsta höfuðborgin á Norðurlöndum til að samþykkja slíka stefnu.







