„Sveinn og bleika garðkannan“ heitir þessi mynd sem sýnir járnlistamanninn Svein Markússon þvo listaverk á Hafnartorgi í Reykjavík. Sveinn segir:
„Ég er kominn í þrifin. Skúra og skrúbba, fægi og bóna. Hreinsa og fegra. Ég var nú ekkert að básúna um þessa nýju dægradvöl mína en náðist þó á mynd af nöskum ljósmyndara Séð og Heyrt sem veit ekki af því að útgáfan hætti fyrir löngu síðan.“




