Fyrstu ilmtónleikar Fischersund á Íslandi fara fram í Austurbæjarbíó kl. 21:00 í kvöld en tónleikarnir eru einstök upplifun þar sem ilmur, tónlist og myndlist renna saman í sannkallað skynjunarferðalag. Það eru einungis örfáir miðar eftir.
Ilmtónleikar Fischersunds eru einstök upplifun þar sem ilmur, tónlist og myndlist renna saman í sannkallað skynjunarferðalag sem kitlar nef, eyru og augu áhorfenda. Tónlistarmennirnir Jónsi úr SigurRós, Sin Fang og Kjartan Holm flytja tónverk sín sem endurspegla óefnislegan ilm Fischersunds, Ingibjörg Birgisdóttir vinnur myndbandsverk fyrir tónleikana og Lilja Birgisdóttir leiðir okkur í gegnum ævintýrið.





