Á mánudaginn verður útsala á hjólum á verkstæði Reiðhjólabænda, Sævarhöfða 31 í Reykjavík, frá klukkan 18-21. Hjólin verða seld eftir vigt – 300 krónur kílóið.
–
Flest hjólin eru fyrir börn á aldrinum 3ja-13 ára, en eitthvað smávegis af fullorðinshjólum. Öll hjólin eru eldri, notuð hjól sem hafa verið yfirfarin. Tekið skal fram að greiða verður fyrir hjólin með reiðufé eða beinni millifærslu á staðnum – 300 kr. per kg.






