Home Blog Page 44

INGÓLFUR ARNARSON MEÐ HLAÐVARP Á KAFFI VEST?

0

Óttar Guðmundsson geðlæknir skrifar pistil um jólabók Einars Kárasonar – Sjá dagar koma – og klykkir út með þessu:

„Ég er ákaflega hrifinn af bók Einars sem segir frá kynslóðinni sem skreið út úr torfkofunum og byggði upp 101 Reykjavík. Það er kaldhæðni sögunnar að núverandi íbúar svæðisins halda að miðborgin hafi ekkert breyst í aldanna rás. Margir telja að Ingólfur Arnarson og Hallveig Fróðadóttir hafi verið fyrstu eigendur og veitingamenn á Kaffi Vest og rekið nýstárlegt hlaðvarp í húsinu.“

SELENSKÍ KOMINN MEÐ GLERAUGU

0

Selenskí Úkarínuforseti er kominn með gleraugu og sést æ oftar með þau á fréttamyndum. Það er eðlilegt. Forsetinn er 47 ára – fæddur í janúar.

NOKIA MEÐ FLJÚGANDI FARSÍMA

0

Finnsku Nokia símarnir lögðu heiminn að fótum sér þegaar farsímabyltingin hófst en létu undan síga fyrir keppinautum þegar á leið.

Nú storma þeir inn á markaðin með fljúgandi drónasíma, innbyggðan dróna sem skýst út úr hólfi og tekst á loft. Með þessu vonast gamli, finnska stígvélaframleiðandinn til að framtíðin sé þeirra – á ný:

SVANHILDUR (85)

0

Ein vinsælasta dægurlagasöngkona Íslandssögunnar, Svanhildur Jakobsdóttir, er afmælisbarn helgarinnar – 85 ára en því trúir enginn. Eins og hún sé síung. Sem hún er. Það munar rétt rúmum mánuði að Svanhildur sé algert jólabarn og hér er jólaplatan hennar:

HEIMA ER BEST HJÁ ÓFEIGI

0

Ingibjörg Dalberg heldur  fimmtu einkasýningu sína í Reykjavík í Listhúsi Ófeigs við Skólavörðustíg 5. Málverkasýningin verður opnuð laugardaginn 22. nóvember kl. 14:00-16:00 og stendur til 30. desember. Viðfangsefni sýningarinnar og þema hverfist um huglæga afstöðu listakonunnar til heimahaga og sveitar og nefnist Heima er best. Opnunartími sýningarinnar verður á venjulegum opnunartíma verslana.

FALLEGUSTU LÓÐIRNAR Í REYKJAVÍK

0

Nefnd á vegum Reykjavíkurborgar hefur valið fegustu lóðirnar í borgarlandinu. Þær eru sem hér segir:

Bergstaðastræti 83

Falleg hornlóð sem opnast í átt að göturýminu á horni Barónsstígs og Bergstaðastrætis. Lóðin er einstaklega vel hönnuð og fallegur, gróskumikill garður með rómantísku gróðurhúsi, tréhúsi og fjölbreyttum smáatriðum sem fegra nærumhverfið. Lágir garðveggir, vel klipptir runnar og stæðileg tré skapa dulúð og draga vegfarendur að.

Arngrímsgata 5 – Eddan Hús íslenskunnar

Nýleg stofnanalóð þar sem sérstakt samspil byggingar og umhverfis skapar heildræna upplifun. Vatn með líparítið í botninum umlykur húsið og myndar sterk tengsl við íslenska náttúruna. Hringlaga cortensen stálhringir móta aðkomuna beggja vegna í hellulögn, skapa tengsl við líparítið og skapa heildarsýn sem flæðir út í göturýmið. Verönd er aðgengileg frá byggingu og flýtur á vatninu sem skapar fallegt uppbrot frá  mismunandi sjónarhornum. Lóðin er með fallegri lýsingu, bekkjum og aðgengileg. Aðkoma inn í bílastæðakjallara er vel leyst með girðingu og gróðri beggja megin og hún fellur vel inn í umhverfi sitt og verður hluti af heildarsamhenginu.

Haukahlíð 5, Smyrilshlíð 2, 4, 6, 8 og 10, Fálkahlíð 6 og Hlíðarfótur 11, 13, 15 og 17 (Fjölbýlishúsalóð)

Heildaryfirbragð inngarðsins og samhengi í litum og efnisnotkun almennt fellur vel að aðliggjandi húsum og skapar jafnvægi og ró. Sérafnotareitir eru snyrtilega afmarkaðir með hleðslusteinum og runnagróðri sem endurtekur sig í garðinum ásamt öðrum fallegum gróðri. Stígar, flæði og tengingar í garðinum eru skemmtilega sveigðir og í beinum línum og mynda hringflæði inn í garðinum og út í göturýmið. Lóðin er að hluta til upphækkuð við stígana og setsvæði er fyrir íbúa á sólríkum stað í garðinum.

ÁTTA RÚTUR Á FÆRIBANDINU HJÁ JÓA Í VÍKINGAÞORPINU

0
„Átta rútur á færibandinu, það má segja að báturinn sé fullur. Það sem af er ári hefur verið okkur gjöfult á svo mörgum sviðum. Takk fyrir það sem öllu ræður,“ sagði Jóhannes Viðar Bjarnason í Fjörukránni í Hafnarfirði og Hótel Viking í Víkingaþorpinu sem þar er.
Starfsmaður hans tók mynd af öllum rútunum fyrir utan og bætti við:
„Það er akkurat þetta, svona stjóri, sem gefur okkur starfsfólkinu enn meiri kraft til að gera ennþá betur, alla daga, allan ársins hring.“

BJÖRK (60)

0

Hin eina sanna Björk er sextug ára í dag. Til hamingju Ísland!

Ólafur Hauksson fyrrum ritstjóri rifjar upp liðna tíð þegar hann tók myndir af Björk við sveitastörf fyrir löngu – svona í framhjáhlaupi:

„Björk er sextug í dag og þá er ekki úr vegi að rifja upp myndir sem ég tók af henni við jarðarbætur á bænum Glóru hjá Labba (Ólafi Þórarinssyni) fyrir margt löngu. Ég fór austur fyrir fjall til að taka viðtal við hana fyrir Samúel. Björk var upptekin ásamt fleirum við jarðarbæturnar og rétt gaf sér tíma í viðtal á milli þess sem hún bisaði við grjótið og færði traktorinn. Ekki man ég tilefni viðtalsins, líklega upptaka í stúdíóinu á Glóru eða væntanleg plata.
Að öllum líkindum var þetta 1984, gæti hafa verið 1983.“

TRÖLL KEYPTI SÓLON OG SELDI STRAX AFTUR

0

Ferðaþjónustan Tröll, Troll.is, keypti nýverið eitt helsta kennileitið í miðbæ Reykjavíkur, Sólon í Bankastræti, en þar er ekki lengur samnefndur veitingastaður.

„Við erum búnir að selja aftur, áttum þetta aðeins í nokkrar vikur,“ segir Gísli Eyland framkvæmdastjóri Tröll. „Við vorum með áætlanir en þær breyttust.“

– Hver keypti?

„Ég get ekki verið að tjá mig um það.“ –

Hvað kostaði byggingin?

„Ég get ekki heldur tjáð mig um það.“

Byggingin er um 550 fermetrar á þremur hæðum.

KASTALAKAFFI Í GARÐASTRÆTI LOKAR – VANDRÆÐI Í NOREGI

0

Útibúi Kastlakaffis Hjálpræðishersins á horni Garðarstrætis og Ránargötu var skyndilega lokað eftir þriggja vikna rekstur.

„Við fengum skilaboð frá höfuðstöðvunum í Noregi að þar væri verið að draga saman og þá gildir það líka um okkur,“ segir Ingvi K. Sigurðsson umsjónarmaður fasteigna hjá Hjálpræðishernum á Íslandi. „Þeir urðu allt í einu mjög stressaðir.“

Ekki er Ingva kunnut um hvað valdi þrengingunum hjá Hjálpræðishernum í Noregi en Kastalakaffi Hersins í höfuðstöðvunum við Suðurlandsbraut hefur gengið vel og verið vinsælt meðal almennings.

Hjálpræðisherinn á húsnæðið í Garðastræti sem er mikil forgjöf í veitingareksti í miðbæ Reykjavíkur.