Ingibjörg Dalberg heldur fimmtu einkasýningu sína í Reykjavík í Listhúsi Ófeigs við Skólavörðustíg 5. Málverkasýningin verður opnuð laugardaginn 22. nóvember kl. 14:00-16:00 og stendur til 30. desember. Viðfangsefni sýningarinnar og þema hverfist um huglæga afstöðu listakonunnar til heimahaga og sveitar og nefnist Heima er best. Opnunartími sýningarinnar verður á venjulegum opnunartíma verslana.







