„Átta rútur á færibandinu, það má segja að báturinn sé fullur. Það sem af er ári hefur verið okkur gjöfult á svo mörgum sviðum. Takk fyrir það sem öllu ræður,“ sagði Jóhannes Viðar Bjarnason í Fjörukránni í Hafnarfirði og Hótel Viking í Víkingaþorpinu sem þar er.
–
Starfsmaður hans tók mynd af öllum rútunum fyrir utan og bætti við:
„Það er akkurat þetta, svona stjóri, sem gefur okkur starfsfólkinu enn meiri kraft til að gera ennþá betur, alla daga, allan ársins hring.“






