Home Blog Page 45

SIF AFGREIÐIR SNORRA

0

„Allar konur breytast að endingu í móður sína – það er þeirra harmleikur,“ ritaði Oscar Wilde.

„Eigum við nú að þurfa að fara aftur í sokkabuxurnar og taka að tipla á tánum kringum Snorra Másson?“

Sif Sigmarsdóttir í nýjasta útspili sínu á visir.is

ASPAS FRÁ ORA INNKALLAÐUR

0

ÓJ&K-Ísam ehf., að höfðu samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur, hefur stöðvað sölu og innkallað frá neytendum ORA Aspas í bitum (hálfdós).

Ástæða innköllunar: Aðskotahlutur fannst.

Neytendur sem hafa keypt umrædda vöru eru beðnir um að hætta notkun hennar og farga en einnig má skila henni í versluninni þar sem hún var keypt.

BO DEREK (69)

0

Dægurstjarnan á himni þokkadísa heimsins á síðustu öld, Bo Derek, er 69 ára í dag. Sló í gegn í rómantísku gamanmyndinni „10“ þar sem hún kitlaði innri taugar karlmanna í milljónavís og á eftir fylgdu kvikmyndirnar „Tarzan the Ape Man“, „Bolero“ og „Ghosts Can’t Do It“. Síðustu ár hefur Bo einbeitt sér að náttúruvernd, hagsmunum uppgjafahermanna og dýravernd.

VERÐLISTI ÍSLENSKRA BAÐLÓNA – „ÓDÝRUSTU VERÐ ONÍ“

0

Dr. Gunni er dellukarl og nú er hann kominn með dellu fyrir íslenskum baðlónum. Hann birtir lista yfir ódýrustu „verð oní“ í tíu baðlón en hann hefur farið oní þau öll nema Skógaböðin og Kraumu:

Sky Lagoon 13.990
Blue Lagoon 11.490
Krauma Lagoon 7.490
Vök Baths 7.490
Geosea Húsavík 6.990
Laugarvatn Fontana 6.990
Laugarás Lagoon 6.900
Skógarböðin 6.900
Hvammsvík Lagoon 5.900
Secret Lagoon 4.200

NÆSTUM UPPSELT HJÁ HELGA Í HÖRPU – BOÐIÐ UPP Á STREYMI HEIM Í STOFU

0

Næstum uppselt er á tónleika Helga Björnssonar í Eldborg á laugardaginn en Helgi er að endurtaka leikinn frá því í fyrra þegar hann margseldi upp Eldborg í tilefni af 40 ára tónlistarútgáfuafmæli hans. Hægt verður að kaupa aðgang að tónleikunum á laugardaginn í streymi en nokkuð er síðan að landsmönnum gafst tækifæri á að vera “Heima með Helga”. Hér er þó um streymi frá tónleikum með áhorfendum að ræða og landsmenn fá þannig einstakt tækifæri á að kíkja á tónleika í Eldborgarsal Hörpu, heima í stofu.

AÐ VERA SAUTJÁN OG VITA EKKI HVERT MAÐUR Á AÐ SNÚA

0
Jónatan Hermannsson er besta skáldið á Netinu:
vera í mannþröng
vera einn samt
hafa ekkert að segja
allir hinir kaldhæðnir
tala í ólíkindatóni
verða ósýnilegur
fara með veggjum
skárra þó en vera aðhlátursefni
varðeldur
töffarar sveitarinnar fara mikinn
kankast á
senda hver öðrum hnútur
eru fyndnir
ganga í augun á kvenfólkinu
hitti jafnaldra mína
sem eru kannski jafnlitlir töffarar og ég
þreifum fyrir okkur
finnum umræðuefni
sem hægt er að tala um
án þess að vera með upphrópanir
tölum um dráttarvélar
vitum að við erum að verða okkur til skammar
drögum okkur inn í tjald
og berum saman Ferguson og Nalla
síðar berst Zetor inn í samanburðinn
töffari fer hjá og heyrir á talið gegnum tjalddúkinn
heldur því á lofti við eldinn
hlátur og glósur
lútum höfði
verðum víst aldrei að manni
getum aldrei talað eins og menn
munum aldrei eiga séns í kvenfólk
enginn er spámaður
þótt hann viti eitthvað um kveikjukerfið í gamla Farmal
engin framtíð í þessari annars góðu sveit
ég fór norður um haustið

KAFLOÐINN MÓTMÆLI GEGN STÝRIVÖXTUM!

0

Tommi á Búllunni sendir myndskeyti:

Í marz 2009 voru stýrivextir 18% þá tókum við Úlfar heitinn Eysteinsson veitingamaður á Þrem frökkum upp á því að mótmæla háum stýrivöxtum og í því skyni ákváðum við að hvorki raka skegg eða klippa hár fyrr en vextir færu niður fyrir 10%. 
Það var svo í janúar 2010 að Már Guðmundsson þáverandi seðlabankastjóri hringdi í mig og tilkynnti mér að daginn eftir mundu vextir loksins fara niður fyrir 10% og í því skyni byði Seðlabankinn okkur Úlfari upp á klippingu og rakstur í anddyri Seðlabankans. Við þáðum með þökkum og fannst við geta hrósað sigri.   
Það er aftur kominn tími til að mómæla háum stýrivöxtum og hvet ég allar manneskjur að taka saman höndum og safna bæði hári og skeggi (þeir sem það geta). Og mótmæla kröftulega á þennan hátt. Það er nóg komið.
Nýrakaðir í Seðlabankanum og voða hissa.

EIRIKSSON Í SJANGHÆ

0

Þekkið þið manninn? Myndin er tekin á íþróttaleikvangi í Sjanghæ í Kína í síðustu viku. Leikmaður merktur Eiriksson. Er þetta Íslendingur? Eða kannski Svíi? Varla. Þá væri hann merktur Erikson. Eða Ericsson. Eða Ericson. Eða Erics. Norrænn er hann yfirlitum og rauðhærður að auki.

EASY PARK OG EASY RIDER

0
„Þurfti að leggja bílnum mínum í fjórar mínútur við Skólavörðustíg. Það kostaði mig 117 krónur Bjarni Þorsteinsson útgáfustjóri:
„Þegar ég verð stór ætla ég að eignast bílastæði við Skólavörðustíg og lesa bækur og horfa á kvikmyndir allan daginn. Byrja á Easy Rider.“

JODIE FOSTER (63)

0

Súperstjarnan og Íslandsvinurinn Jodie Foster er afmælisbarn dagsins (63). Ferillinn orðinn langur þar sem hún byrjaði sem barnastjarna hjá Disney og síðan varð gatan greið.